Fyrsta degi ÍM 50 í sundi lauk með látum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2026 23:03 Boðsundssveit Sundfélags Hafnarfjarðar fagna Íslandsmetinu í kvöld. SSÍ/Hákon Ágústsson Fyrsti úrslitahluti Íslands- og unglingameistaramótsins í 50 metra laug í sundi lauk með flottri frammistöðu boðsundssveitar Sundfélags Hafnarfjarðar.
Íslandsmetið féll í 4 x 200 metra skriðsundi þar sem SH-ingar voru í miklu stuði. Boðsundssveit Sundfélags Hafnarfjarðar skipuðu þeir Birnir Freyr Hálfdánarsson, Hólmar Grétarsson, Magnús Víðir Jónsson og Ýmir Chatenay Sölvasson. Þeir kláruðu sundið í kvöld á glænýju Íslandsmeti í greininni, 7:37,92 mín., en það er bæting á fyrra meti, um 3,13 sekúndur, sem sveit SH setti á ÍM 50 í fyrra. Fimm sundmenn náðu lágmörkum á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug, sem fer fram í París dagana 10. - 16. ágúst næstkomandi, en það eru þau Birnir Freyr Hálfdánarsson (SH) í 100 metra flugsundi, Guðmundur Leó Rafnsson (ÍRB) í 200 metra baksundi, Snorri Dagur Einarsson (SH) í 100 metra bringusundi, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) í 50 metra skriðsundi og Símon Elías Statkevicius (SH) í 50 metra skriðsundi. Einnig voru þau Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH) og Vala Dís Cicero (SH) með lágmörk inn á Evrópumeistaramót unglinga en það fer fram í München dagana 7. - 12. júlí næstkomandi. Á morgun heldur fjörið í Ásvallalauginni í Hafnarfirði áfram, en þá eru helstu greinar 200 metra fjórsund karla (17:26), 50 metra flugsund kvenna (17:47) og síðan auðvitað æsispennandi boðsund í lok hluta sem hefjast 18:33, en morgundagurinn hefst kl. 09:00 á morgun með undanúrslitahluta og hefjast síðan úrslitin kl. 16:30.
Sund Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og Alonso mætir á Anfield Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Sjá meira