Neytendur

Inn­kalla hafra­graut vegna mögu­legs að­skota­hlutar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hafragrauturinn sem á að kalla inn.
Hafragrauturinn sem á að kalla inn. Aðsend

Karl K Karlsson ehf innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) Moma hafragraut. Í tilkynningu segir að ástæða innköllunar sé grunur um að aðskotahlutur geti fundist í vörunni.

Þeir sem eiga umrædda vöru enn þá til eru beðnir um að farga eða skila til viðkomandi verslunar eða til Karls K Karlssonar ehf á skrifstofu þeirra í Víkurhvarfi 1, Kópavogi gegn fullri endurgreiðslu.

Upplýsingar um vöruna:

  • Vörumerki: Moma
  • Vöruheiti: Moma Porridge Pot
  • Framleiðandi: Moma Foods
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Innflytjandi: Karl K Karlsson ehf
  • Nettó þyngd: 55-70 g
  • Lotunúmer: sjá að neðan.
  • Strikanúmer: 5060146372046 5060146370431 5060146 370714
  • Dreifing: Hagkaup, Hlíðarkaup, Samkaup, Nettó, Kjörbúðin, Fjarðarkaup.

Karl K Karlsson biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Myndir af grautnum og lotunúmer. Aðsend

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband í síma: 5409000 eða senda tölvupóst á netfangið: soludeild@kallik.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×