Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir skrifar 23. mars 2026 17:00 Þar sem heitar umræður hafa spunnist um byggingu menningarhúss í Skagafirði finn ég mig knúna til að greina frá því hvaða þýðingu þessi framkvæmd hefur fyrir starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga. Þörf Byggðasafns Skagfirðinga fyrir varanlegt varðveislurými undir safnkostinn er grundvöllur áframhaldandi starfsemi safnsins. Um er að ræða framkvæmd sem á sér mjög langan aðdraganda. Kallað hefur verið eftir íbúakosningu vegna framkvæmdarinnar þar sem spurt er hvort Skagfirðingar vilji yfir höfuð menningarhús. Í ljósi þess sem er í húfi snýst spurningin í raun ekki um menningarhús – heldur þetta: Vilja Skagfirðingar tryggja framtíð safna í héraðinu? Í umræðum um menningarhúsið er látið í veðri vaka að um „lúxusframkvæmd“ sé að ræða. Svo er alls ekki - um er að ræða bráðnauðsynlega framkvæmd sem hér verður tæpt á. Eitt er þó ljóst, annað hvort þarf sveitarfélagið að standa straum af öllum kostnaði við byggingu varðveislurýmis byggðasafnsins, umfangsmiklum endurbótum á safnahúsinu og byggingu varðveislurýmis skjala- og listasafns, eða fá til þess stuðning frá ríkinu í formi framlags til menningarhúss. Safnkostur í kössum Byggðasafnið flutti safnkostinn í núverandi húsnæði að Borgarflöt 17-19 árið 2020, sem átti aldrei að vera annað en til bráðabirgða þar sem unnið var að því að koma Menningarhúsinu á fót. Eftirlitsnefnd safnaráðs tók húsnæðið út fyrir flutninginn haustið 2018 og gerði nokkrar alvarlegar athugasemdir, m.a. um eldvarnir, mögulegt vatnstjón og mengunarhættu. Húsnæðið uppfyllir því ekki skilyrði safnaráðs hvað varðar húsnæði viðurkenndra safna. Aðsend Í bréfi frá safnaráði (dags. 20. des. 2018) segir: „Safnaráð gefur Byggðasafni Skagfirðinga tímabundna undanþágu út árið 2021 til að flytja geymslur safnsins í varanlegt framtíðarhúsnæði sem uppfylli skilyrði safnaráðs til húsnæðis viðurkenndra safna.“ Frá því safnaráð tók út húsnæðið eru liðin átta ár, þar af fimm frá því safnið átti að flytja þaðan út, á meðan hefur safnkosturinn beðið í kössum og á vörubrettum og er afar þröngt um hann. En þar sem nýtt varðveisluhúsnæði var innan seilingar í nýju menningarhúsi hefur því verið sýndur skilningur. Þetta er sá tími sem undirbúningurinn hefur tekið og loksins er að koma að því að safnkosturinn og starfsfólk safnsins komist undir nýtt þak, þar sem: ekki er hætta á vatnstjóni þar sem lagnir eru ekki inni í sama rými og safngripirnir, ekki stafar eld- og sprengihætta að gripunum vegna annarrar starfsemi í húsinu, hita- og rakastig sveiflast ekki verulega með neikvæðum áhrifum á varðveislu, meindýr komast ekki að gripum, hægt verður að taka á móti safngripum á ný, hægt er að bjóða starfsfólki uppá viðunandi starfsaðstæður og loftgæði, svo dæmi séu tekin. Enda var þetta húsnæði ekki byggt til að varðveita safngripi. Í nýju húsnæði verður hægt að tryggja varðveislu gripanna og stórbæta aðgengi að þeim. Jafnframt heldur Byggðasafn Skagfirðinga stöðu sinni sem viðurkennt safn. En hvað þýðir það? Safnaráð getur lagt til afturköllun viðurkenningar Samkvæmt safnalögum skulu viðurkennd söfn „starfa í samræmi við skilmála safnaráðs um húsnæði, öryggismál, skráningarkerfi og faglega starfsemi.“ Markmiðið með viðurkenningunni er að efla starfsemi safna við varðveislu menningar- og náttúruarfs Íslands, tryggja að honum verði skilað óspilltum til komandi kynslóða, veita fólki aðgang að honum og stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn. Auk þess sem viðurkenning safnaráðs er forsenda þess að söfn geti sótt um rekstrar- og verkefnastyrki úr safnasjóði. Safnaráð hefur eftirlit með starfsemi viðurkenndra safna og ef safn uppfyllir ekki skilyrði viðurkenningar getur safnaráð sent tillögu til ráðherra um afturköllun viðurkenningar. Með öðrum orðum, ef safnið uppfyllir ekki skilyrði viðurkenningar getur það misst hana – og þar með rétt til rekstrarstyrkja og faglegs stuðnings ríkisins. Hver króna sem varið er í skapandi greinar verður að þremur Ef ég nefni dæmi um rekstar- , verkefna- og rannsóknarstyrki sem starfsfólk safnsins sótti um til margvíslegra verkefna Byggðasafns Skagfirðinga hljóðuðu þeir upp á tæpar 27 m.kr. á síðasta ári. Það munar um þessa fjármuni til að halda uppi öflugri menningarstarfsemi. Viðurkenningin hefur m.a. gert Byggðasafni Skagfirðinga kleift að vera með metnaðarfulla sýningastarfsemi og reka einn stærsta ferðamannastað Norðurlands í Glaumbæ, vera með fjölbreytta miðlun og fræðslu m.a. með því að taka á móti skólahópum, reka Fornverkaskólann með kennslu á gömlu byggingarhandverki, stunda fornleifarannsóknir á skagfirskum menningararfi í samstarfi við bæði innlenda og erlenda aðila. Einnig er vert að benda á að í skýrslu menningar- og viðskiptaráðuneytisins um framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi kemur fram að hver króna sem hið opinbera fjárfestir í menningu og skapandi greinum verður að þremur krónum í hagkerfinu. Hver er raunhæf lausn við brýnum vanda safnanna – og hvenær? Byggðasafni Skagfirðinga hefur verið veittur dágóður frestur til úrbóta í þessum efnum en sá frestur er fyrir löngu liðinn. Þá tala ég ekki um viðhaldsskuldina sem komin er á safnahúsið og hversu lengi er hægt að bjóða starfsfólki og gestum upp á ískalt hús, með leka og mosavaxna glugga og húsnæði sem ekki hefur neina vaxtarmöguleika. Það er fullkomlega eðlilegt að íbúar velti fyrir sér forgangsröðun opinberra fjármuna en þessi verkefni eru ekki annað hvort eða. Sveitarfélagið ber lagalega ábyrgð á varðveislu safnkosts, rétt eins og það ber ábyrgð á öðrum grunninnviðum samfélagsins. Það sem ég hef saknað í allri umræðu um menningarhúsið og að falla skuli frá þeim áformum, þrátt fyrir gríðarmikla vinnu og tilkostnað undanfarinna ára, er: Ef falla á frá þessum áformum verður að svara einni einfaldri spurningu: Hver er raunhæf lausn við brýnum vanda safnanna – og hvenær? Þar virðist fátt um svör. Höfundur er safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skagafjörður Menning Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar