Innlent

Fimm bíla á­rekstur á Sæ­braut

Árni Sæberg skrifar
Tafir urðu á Sæbraut vegna árekstursins.
Tafir urðu á Sæbraut vegna árekstursins. Vísir

Fimm bílar rákust saman á Sæbraut við Kringlumýrarbraut laust fyrir klukkan 17. Engin slys urðu á fólki.

Þetta staðfestir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Hann segir að lögregluþjónar séu á leið á vettvang en talið sé að óhappið hafi verið minni háttar.

Að öðru leyti hafi umferðin í dag gengið vel miðað við aðstæður. Umferðin hafi verið hæg þegar éljabakkar ganga yfir en engin alvarleg slys hafi orðið á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×