Fólk með kynlífsvanda fær ekki þá hjálp sem það þarf Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir skrifar 22. mars 2026 19:02 Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir er sálfræðingur frá Háskóla Íslands og para- og kynlífsráðgjafi frá Michigan Háskóla. Getty/Vísir Það er sárt að sitja á móti manneskju sem hefur beðið í hálft ár eftir tíma hjá mér og heyra að hún hefur hvergi getað fengið aðstoð með kynlífsvanda.
Það er vont að vita að fólk á erfitt með að nálgast faglega hjálp með sinn vanda og að það þurfi jafnvel að leita á marga staði. Sum eru farin að finna fyrir vonleysi, kvíða og depurð vegna þess að ekki hefur gengið að vinna með vandann. Þau sem hafa upplifað mikla skömm út af sínum kynlífsvanda eru jafnvel farin að einangra sig og finna fyrir lífsleiða eða sjálfsvígshugsunum. Fólk á öllum aldri leitar til mín með risvanda, örvunarvanda, skort á kynlöngun, fullnægingarvanda eða sársauka við samfarir. Svo eru pör sem hafa átt í erfiðleikum með nánd og kynlíf í svo mörg ár að þau muna varla hvernig þetta var áður Kynlífsvandi er mun algengari en fólk gerir sér grein fyrir. Talið er að allt að 40% kvenna og 30% karla séu með a.m.k. einn kynlífsvanda. Það er einnig algengt, sérstaklega meðal kvenna og leghafa, að fleiri en einn vandi greinist á sama tíma. Sum fá aldrei aðstoð við sínum vanda. Sum leita á milli lækna og kynlífsráðgjafa en fá aldrei heildstæða þjónustu. Sjá alla pistla Aldísar hér. Þrátt fyrir algengi og alvarleika kynlífsvanda finnst mér umræðan oft vera á þann veg að þetta sé lúxusvandi. Þá er gefið í skyn að þessi vandi sé ekki eins alvarlegur og einhver annar vandi. Við erum komin svo skammt á veg í að geta talað um þessa hluti án þess að umræðan verði vandræðaleg eða snúist upp í grín. Við erum fjörutíu árum á eftir norðurlöndunum Það eru 40 ár síðan umræður áttu sér stað á danska þinginu um skort á meðferð fyrir fólk með kynlífsvanda. Í kjölfar þess var stofnuð sérstök klíník sem hefur tekið á móti fólki, greint vanda og veitt meðferð. Samskonar klíníkur, eða starfsstöðvar, má einnig finna í Osló og Stokkhólmi. Þar starfa þverfagleg teymi á sviði kynheilbrigðis og þangað leita einstaklingar með kynlífsvanda og fá skoðun hjá lækni, sjúkraþjálfara og viðtöl við kynfræðing eða kynlífsráðgjafa eftir því hver vandinn er. Við erum langt á eftir nágrannaþjóðum okkar sem við viljum bera okkur saman við. Það er kominn tími til þess að sú meðferð og þjónusta sem við veitum fólki með kynlífsvanda verði endurskoðuð. Á Íslandi starfar stór hópur sérfræðinga á þessu sviði en það þarf að tryggja aukna teymisvinnu, helst undir einu þaki. Með því væri hægt að tryggja bestu mögulegu meðferð. Ég skora á stjórnvöld og þá sérstaklega heilbrigðisráðherra að bæta þjónustuna á Íslandi fyrir fólk með kynlífsvanda. Einnig vona ég að fleiri taki þátt í því að berjast fyrir bættri þjónustu fyrir öll. Ég á mér þann draum að hér á Íslandi verði opnuð starfsstöð þar sem þverfagleg þjónusta er veitt og meðferð við kynlífsvanda bætt til muna. Þessi pistill er sá síðasti í röð pistla sem ég skrifa fyrir Vísi. Það hefur verið einstaklega gaman að fá að deila mínum skrifum með ykkur og heyra í þeim sem hafa skrifað mér. Hópurinn sem tekst á við vanda á þessu sviði er stór en ég vona að það hafi skilað sér skýrt til ykkar að þið eruð ekki ein! Gangi ykkur vel <3
Kynlíf Kynlífið með Aldísi Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira