Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Kjartan Kjartansson skrifar 20. mars 2026 11:03 Þorsteinn Pétur Guðjónsson steig fyrst tímabundið til hliðar sem forstjóri Deloitte eftir að hann var ákærður fyrir kynferðisbrot. Hann gerði samkomulag við fyrirtækið um að hann léti af störfum eftir að hann var sýknaður í síðasta mánuði. Vísir/Vilhelm Dómari sem sýknaði Þorstein Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóra Deloitte á Íslandi, af ákæru fyrir kynferðisbrot taldi misræmi í framburði ásakanda hans og vinkonu hennar. Þá væri frásögn þeirra hvorki studd framburði annarra vitna né sönnunargögnum málsins.
Þorsteini var gefið að sök að hafa kysst konu gegn vilja hennar á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann hefði þrýst henni upp að vegg, rekið tunguna ofan í kokið á henni og káfað á kynfærum hennar innanklæða. Héraðsdómur Reykjaness sýknaði hann með dómi sem féll 19. febrúar. Mikið bar á milli í frásögn Þorsteins annars vegar og konunnar hins vegar eins og rakið er í dómnum sem var birtur á vef dómstólsins í dag. Þorsteinn sagðist aðeins hafa rætt við þær lítillega þegar þær báðu annan mann, sem bar vitni í málinu, um að greiða reikning þeirra. Konan hélt því aftur á móti fram að Þorsteinn hefði verið ágengur við hana og lýsti nokkrum atvikum því til stuðnings. Hann hefði starað á hana og vinkonu hennar á dansgólfi á hótelinu, reynt að grípa í hana þegar þær ræddu við tvo menn sem báru einnig vitni í málinu og síðar elt þær út á reykingasvæði. Þá hefði Þorsteinn hvíslað einhverju í eyra hennar. Það sem hann á að hafa hvíslað að konunni var afmáð úr dómnum áður en hann var birtur. Þær vinkonan hefðu farið inn á klósett til þess að ráða ráðum sínum um hvernig þær kæmust óhultar upp á herbergi sín fyrir Þorsteini og félögum hans. Þegar þær hefðu komið út hefði hann elt hana og mennirnir tveir sem báru vitni hefðu verið á eftir þeim. Á miðjum gangi hefði hann ýtt henni upp að vegg, troðið tungu ofan í kokið á henni og sett höndina í klofið á henni. Vinkonan hefði rifið Þorstein af henni. Bar ekki nákvæmlega saman um allt Dómarinn taldi framburð Þorsteins stöðugaðn og trúverðugan og sömuleiðis tveggja vitna sem voru með honum. Þótt framburður konunnar hefði í meginatriðum verið stöðugur um atvikið hefði misræmi verið um ýmislegt, þar á meðal milli framburðar hennar hjá lögreglu við rannsókn málsins annars vegar og fyrir dómi hins vegar og á milli frásagnar vinkennanna tveggja. Þeim vinkonunum hefði þannig til að mynda ekki borið fyllilega saman um aðdragandann að atvikinu sem Þorsteinn var ákærður fyrir, hverjir hefðu orðið vitni af því og um hvað hefði gerst nákvæmlega. Hvorug sagðist þannig muna eftir að Þorsteinn hefði kysst konuna áður en atvikið hefði átt sér stað þótt þær hefðu borið um það hjá lögreglu. Konan sem bar Þorstein sökum sagðist hafa verið mjög ölvuð þetta kvöld. Vinkonan bar hins vegar að hvorug þeirra hefði verið það. Fyrir sitt leyti sagði Þorsteinn að áfengisneysla hans þessa nótt hefði verið „í meðallagi“. Hún hefði ekki áhrif á minni hans. Þá taldi dómarinn frásögn konunnar ekki studda framburði annarra vitna eða sýnilegum sönnunargögnum í málinu. Framburður konunnar dygði því ekki til sönnunar á broti gegn eindreginni neitun Þorsteins og stöðugum og trúverðugum framburði hans.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Innlent Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Erlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Fleiri fréttir Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gefa ekkert upp um mál tveggja barna á Múlaborg Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Sjá meira