Reykjavík er Eiður Smári árið 1998 Bjarni Guðjónsson skrifar 21. mars 2026 08:02 Knattspyrnuunnendur á miðjum aldri muna margir eftir skammri dvöl Eiðs Smára Guðjohnsen í KR árið 1998. Kappinn hafði verið meiddur um langa hríð og líkamlegt ásigkomulag eftir því. Allir vissu að Eiður Smári væri allt of góður fyrir KR og íslensku deildina, en hann hafði verið afskrifaður erlendis eftir langvinn meiðsli. Einhvers staðar varð hann að byrja. Hjá KR hitti Eiður Smári fyrir Atla heitinn Eðvaldsson. Hann var þá þjálfari KR – og síðar íslenska landsliðsins. Sagan segir að Atli hafi tekið Eið Smára upp á sína arma, og lagt sitt að mörkum til að koma honum í form. Atli fyrirskipaði ekki bara strangar æfingar, heldur átti líka að taka mataræðið föstum tökum. Sumir sögðu að Atli hefði sent njósnara á eftir Eiði sem átti að gera súkkulaðistykki og aðra óhollustu upptæka yrði hann staðinn að verki. Reykjavík er ekki í leikformi Bakgrunnur minn er úr íþróttum og atvinnulífi. Raunar finnst mér margt líkt með þessu tvennu. Heilbrigð samkeppni, og sterk liðsheild nær því besta úr hverjum og einum. Góðir siðir skila oftar en ekki góðum árangri. En nú er ég kominn í pólitík og einhverjir kunna að velta því fyrir sér hvers vegna mér er hugsað til sögunnar af Eiði Smára í KR árið 1998. Þegar nánar er gáð er hins vegar margt líkt með líkamlegu ástandi Eiðs Smára á þeim tíma, og rekstri Reykjavíkurborgar undanfarna áratugi. Verkefnið er það sama. Koma þarf Reykjavíkurborg í leikform, og takist það eru möguleikarnir óþrjótandi. Rétt eins og hjá Eiði Smára. Ósjálfbær grunnrekstur Því miður er það svo að grunnrekstur Reykjavíkurborgar er ósjálfbær. Borgarsjóður - grunnrekstur borgarinnar - hefur ekki borið sig um lengri hríð, en er haldið uppi af einskiptitekjum, s.s. lóðasölu, eða arðgreiðslum frá dótturfélögum borgarinnar. Þá sérstaklega Orkuveitunni. Útsvar er í lögbundnu hámarki, og gjaldskrárhækkanir dótturfélaga eru reglulegar og langt umfram verðlag. Ekkert annað en dulbúin skattheimta. Reykjavíkurborg er leiðandi áhrifavaldur á verðbólgu í landinu. Reykjavík virðist heldur ekki njóta stærðarhagkvæmni að neinu leyti þegar kemur að fjölda starfsfólks eða kostnaði við þá þjónustu sem þó er veitt. Peningum er sólundað í verkefni sem engu skila öðru en dyggðaskreytingum á tyllidögum, svo sem Mannréttindaskrifstofu. Borgin býður ekki út verkefni í nægum mæli – t.d. sorphirðu – og rekur sennilega stærsta hugbúnaðarhús landsins í samkeppni við einkaaðila. Undanfarinn áratug hefur skuldastaða borgarinnar á íbúa aukist jafnt og þétt, eða um sem nemur um 25% á föstu verðlagi. Á sama tíma hafa borgarbúar fundið áþreifanlega fyrir versnandi þjónustustigi, og ekki er að sjá að fjárfest hafi verið í innviðum. Allir þekkja ástandið á skólabyggingum í borginni, og úr sér gengna samgönguinnviði. Við höfum skuldsett okkar en ekkert fengið í staðinn. Slæm viðskipti það. Komum borginni í leikform En aftur að Eiði Smára. Restina af sögunni þekkja allir. Eiður spilaði bara örfáa leiki með KR, hann kom sér í form, og var kominn aftur í atvinnumennsku áður en langt um leið. Ferillinn varð auðvitað glæsilegur. Englandsmeistari með Chelsea og Evrópumeistari með Barcelona. Ekki þarf að fjölyrða frekar um það. Verkefnið hjá Reykjavíkurborg er ekki ósambærilegt því sem blasti við Eiði Smára og Atla Eðvaldssyni árið 1998. Við þurfum að beita aga í rekstri, horfa í hverja krónu, einblína á kjarnaverkefni borgarinnar og vinda ofan af skuldasöfnun liðinna ára. Minnkum yfirbygginguna m.a. með nýtingu gervigreindar, bjóðum út verkefni, látum af samkeppni við einkaaðila og leggjum niður gæluverkefni. Forgangsraða þarf verkefnum upp á nýtt, og leggjast í innviðaátak sem nýtist næstu kynslóðum. Möguleikar Reykjavíkurborgar eru nefnilega óþrjótandi. En fyrst þurfum við að koma borginni í leikform. Höfundur skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Guðjónsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar