Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Árni Sæberg skrifar 19. mars 2026 11:59 Daði Már hugsaði sig vel um áður en hann þýddi tilvitnunina. Vísir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hlaut skammir í hattinn frá forseta Alþingis fyrir að tala ensku í ræðustól. Hann gerði í kjölfarið tilraun til að þýða tilvitnun í Dwight Eisenhower, fyrrum Bandaríkjaforseta, og þá hló þingheimur.
Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, beindi fyrirspurn til Daða Más í tilefni af stýrivaxtahækkun gærdagsins og áframhaldandi baráttu við verðbólgudrauginn. Þarf að breyta um plan? „Hver er raunveruleg stefna, eða svokallað plan, ríkisstjórnarinnar núna í ljósi aðstæðna, er það mat ráðherrans að planið standi óbreytt og að engu þurfi að breyta eða er það mat ráðherrans að nauðsynlegt kunni að vera að grípa til nýrra aðgerða á næstu vikum og breyta þannig um plan?“ spurði Þórarinn Ingi. Þar vísaði hann til slagorðs Samfylkingarinnar í aðdraganda síðustu alþingiskosninga um að flokkurinn væri með plan til þess að ná niður vöxtum og verðbólgu. Þegar ráðuneyti Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum voru stýrivextir 8,5 prósent og þegar á niðurleið og verðbólga 4,8 prósent. Í dag eru stýrivextir 7,5 prósent og verðbólga 5,2 prósent og útlit er fyrir frekari vaxtahækkanir. Auðvelt að þýða Daði Már sté í ræðustól og þakkaði Þórarni Ingi fyrir ljómandi góða spurningu. „Ef ég má leyfa mér, með leyfi forseta, að vitna í fyrrum forseta Bandaríkjanna, Dwight Eisenhower, þá er haft eftir honum: „Plans are worthless, but planning is everything.“. Þetta held ég að sé nú,“ sagði hann áður en Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hringi bjöllu sinni og skarst í leikinn. „Forseti bendir hæstvirtum ráðherra á að þessi orð er mjög auðvelt að þýða,“ sagði hún. Í lögum um þingsköp Alþingis segir að þingmálið sé íslenska og að ef þingmaður [sem Daði Már er reyndar ekki] vitni í prentað mál á erlendri tungu skuli hann jafnframt þýða eða endursegja efni þess á íslensku. Baðst afsökunar „Plön eru, ömm, gagnslaus, að plana er allt. Og ég biðst afsökunar á þessu,“ sagði Daði Már þá og uppskar hlátrasköll úr þingsal.“ Þrátt fyrir ábendingar forseta yrði hann að viðurkenna að honum fyndist tilvitnunin í Eisenhower hljóma betur á ensku en í hans þýðingu. „Ég ætla samt að segja: Það sem hefur ekki breyst, svo ég svari spurningu háttvirts þingmanns, er að vandamálið sem við tókum við var of mikil eftirspurn miðað við þá getu sem hagkerfið hefur til að svara henni. Það er enn þá staðan þrátt fyrir þau óveðursský sem hafa hrannast upp og viðbrögðin við því eru að ríkið dragi úr sinni eftirspurn og reyni þannig að stuðla að jafnvægi í hagkerfinu. Að því leyti eru óveðursskýin ekki að breyta stefnunni en þau gera auðvitað aðgerðirnar meira aðkallandi. Þannig að ef það er á einhvern hátt svar við spurningu háttvirts þingmanns þá er planið í sjálfu sér í eðlinu það sama en orðið meira aðkallandi að því sé fylgt og fylgt mjög nákvæmlega,“ sagði hann að lokum.
Alþingi Viðreisn Grín og gaman Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira