Klöppuðu fyrir evrópska heimsveldinu Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 18. mars 2026 06:02 Merkilegt en alls ekki óvænt var að lesa grein Svanborgar Sigmarsdóttur, framkvæmdastjóra Viðreisnar, á Vísi í gær þar sem hún líkti Evrópusambandinu við fyrirkomulag ríkis. Það er að segja Íslands. Enda hefur lokamarkmið samrunaþróunarinnar innan sambandsins og forvera þess frá upphafi verið að til yrði eitt sambandsríki og er það komið langt á þeirri leið. Þannig eru allar helztu stofnanir Evrópusambandsins federalískar í eðli sínu og hefur þróunin jafnt og þétt verið í þá áttina. Þá hefur berið hrein leitun að forystumönnum innan sambandsins sem ekki hafa verið yfirlýstir stuðningsmenn þess. Síðasta haust var Guy Verhofstadt, forseti evrópsku samtakanna European Movement International, heiðursgestur landsþings Viðreisnar en þau hafa frá stofnun þeirra skömmu eftir síðari heimstyrjöldina stutt lokamarkmiðið. Verhofstadt sjálfur er einn þekktasti stuðningsmaður markmiðsins og hefur meðal annars ritað bók um það sem heitir einfaldlega United States of Europe (e. Bandaríki Evrópu). Í ræðu sinni á landsþinginu gekk hann þó enn lengra og talaði um að Evrópusambandið þyrfti að verða að heimsveldi (e. empire) og hlaut ræðan standandi lófaklapp frá landsþingsfulltrúum flokksins. 5% hlutdeild í alþingismanni Tilefni greinar Svanborgar var skrif Jens Garðars Helgasonar, þingmanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, á Vísi þar sem hann líkti Evrópusambandinu við húsfélag í fjölbýlishúsi þar sem eigendur einstakra íbúða sætu ekki við sama borð þó þau ættu vissulega sæti við borðið eins og Evrópusambandssinnar tala gjarnan um að Ísland þurfi að eiga innan sambandsins. Eigendur stærri íbúða hefðu þannig meira vægi en aðrir og færu fyrir vikið sínu fram meira eða minna í krafti þess. Þetta er alls ekki fjarri lagi enda fer vægi ríkja innan Evrópusambandsins fyrst og fremst eftir því hversu fjölmenn þau eru. Kæmi til inngöngu í Evrópusambandið tæki vægi Íslands við ákvarðanatöku þess fyrst og fremst mið af íbúafjölda landsins eins og í tilfelli þeirra ríkja sem þar eru innanborðs í dag. Vægi Íslands á þingi sambandsins yrði þannig sex þingmenn af vel yfir 700 eða yfirfært á Alþingi á við hálfan þingmann af 63. Staðan yrði margfalt verri í ráðherraráði þess þar sem tekið er fullt mið af íbúafjölda en lágmarks vægis eins og á þinginu. Þar yrði vægi Íslands um 0,08% eða á við einungis 5% hlutdeild í einum alþingismanni. Þetta yrði svokallað „sæti við borðið“ sem Evrópusambandssinnar tala oft og iðulega um. Verður ekki samið um þetta Fyrir jólin kom upp mál, þegar tekin var ákvörðun um aflaheimildir þessa árs í efnahagslögsögu Evrópusambandsins, sem lýsir því vel hversu illa að vígi fámennari ríki standa gagnvart þeim fjölmennari innan þess. Þá beittu Þýzkaland, Frakkland, Pólland og Holland sér fyrir því í krafti vægis síns út frá íbúafjölda að samningur sem írsk stjórnvöld höfðu við sambandið, og átti að tryggja írskum útgerðum fiskiskipum lágmarks aflahlutdeild á miðunum við Írland, væri sniðgenginn. Írar gátu ekki rönd við reist. Forsvarsmenn þeirra töluðu um árás á smáríki. Írar eru þó 5,4 milljónir. Margfalt fjölmennari en við. Minnimáttarkennd kallaði Svanborg það að benda á staðreyndir sem þessar. Vildi hún meina að íbúafjöldinn skipti ekki meginmáli innan Evrópusambandsins heldur hvernig fulltrúar einstakra ríkja höguðu málflutningi sínum. Það vantaði ekki að írskir ráðamenn beittu sér af krafti. Það dugði einfaldlega ekki til. Svona eru leikreglur Evrópusambandsins sem ríkin eru bundin af. Fámennu ríkin eru háð því að stærri ríkin séu reiðubúin að hlusta. Því miður er þessi reynsla Íra langt frá að vera einsdæmi. Mikilvægt er einnig að hafa í huga að þetta er ekki samið um í umsóknarferli að sambandinu. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar