Niðurrifið á göngubrúnni hafið Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2026 14:04 Á meðan unnið er að niðurrifi gömlu brúarinnar verður hluta af nálægum stígum lokað. Reykjavíkurborg Vinna við niðurrif gömlu göngubrúarinnar yfir Elliðaár við Dimmu hófst í dag. Áætlað að verkinu verði lokið fyrir páska.
Á vef Reykjavíkurborgar segir að gamla göngubrúin sé komin til ára sinna og hafi ný brú tekið við því hlutverki sem hún hafi gegnt um árabil. „Nýja brúin er staðsett um 100 metrum fyrir neðan þá gömlu og er hönnuð bæði fyrir gangandi- og hjólandi vegfarendur. Loka þarf aðliggjandi stígum meðan á verkinu stendur. Gamla brúin var upphaflega byggð sem lagnabrú fyrir vatns- og hitaveitu en var einnig nýtt sem göngubrú. Tröppur voru upp á brúna til að fólk kæmist yfir hana en þær voru orðnar laskaðar og varasamar fyrir vegfarendur. Fyrir nokkrum misserum voru settir nýir rampar sitt hvoru megin við brúna til að bæta aðgengi en það var aðeins bráðabirgðalausn. Nýja brúin er staðsett um 100 metrum fyrir neðan þá gömlu.Reykjavíkurborg Hluta af nálægum stígum lokað Yfir vetrartímann var einnig orðið erfitt að fara þarna yfir, ekki síst með vagna, kerrur eða hjól og því var löngu orðið tímabært að byggja nýja brú sem uppfyllir nútímakröfur. Á meðan unnið er að niðurrifi gömlu brúarinnar verður hluta af nálægum stígum lokað. Unnið verður beggja vegna Dimmu fyrstu vikuna en eftir það austan við ána. Þá verður jafnframt lokun á stíg undir Breiðholtsbraut aflétt. Vegagerðin Nýja brúin er hluti af framkvæmdum sem heyra undir nýjan Arnarnesveg og eru hluti af Samgöngusáttmálanum,“ segir á vef Reykjavíkurborgar. Meðfylgjandi er kort þar sem sjá má hvaða stígum verður að loka vegna niðurrifsins:
Reykjavík Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira