Reykjavíkurborg skilar auðu Unnar Þór Sæmundsson skrifar 17. mars 2026 09:30 Viðbrögð Reykjavíkurborgar við Bakkakotsmálinu hafa hingað til einkennst af einu. Þögn. Þegar spurt er um málið eru svörin fá, almenn og varfærin. Borgin ber fyrir sig að gögnin séu grafin í skjalageymslum og þau viti í raun ekkert hvar þau séu, tefla svo fram embættisfólki til þess að fegra hlutina og þykjast vera að gera betur. Það sem eftir stendur er því ekki skýring heldur tómarúm. Í eðlilegri stjórnsýslu væri þetta ekki svona, við eigum ekki að sætta okkur við að kerfið leyfi tímanum að fella málið í gleymsku. Við skulum ekki gleyma því að Reykjavíkurborg er það sveitarfélag sem hélt áfram að senda börn á Bakkakot í 3 ár eftir að Barnaverndarstofa lagðist gegn vistun barna á bænum. Auðvitað má túlka þetta sem einhverskonar klaufaskap eða saklausa yfirsjón. En eftir að hafa fylgst með barnaverndarkerfinu um árabil kemur þessi þögn mér ekkert á óvart. Hún er í raun nokkuð fyrirsjáanleg. Kerfi sem er byggt upp af mörgum stjórnsýslustigum, þar sem ábyrgð er dreifð á milli nefnda, stofnana og embætta, hefur ákveðinn eiginleika. Þegar eitthvað alvarlegt kemur upp verður mjög erfitt að finna út úr hvar ábyrgðin liggur. Alltaf er hægt að benda á næsta hlekk í keðjunni. Einhver annar átti að hafa eftirlit, einhver annar átti að hafa upplýsingar, einhver annar átti að bregðast við. Þegar slíkt kerfi stendur frammi fyrir alvarlegum ásökunum verður niðurstaðan oft sú sama. Enginn veit nákvæmlega hvað gerðist. Gögn eru ófullnægjandi og að lokum situr almenningur eftir með þá tilfinningu að málið hafi einfaldlega horfið inn í stjórnsýsluna. Viðbrögð Reykjavíkurborgar við Bakkakotsmálinu virðast falla nákvæmlega inn í þetta mynstur. Borgin þykist ekki vita hvar gögnin eru nákvæmlega. Hún getur ekki sagt nákvæmlega hvað gerðist. Það virðist enginn geta útskýrt hvernig eða að hvaða marki eftirliti var háttað. Í stað þess að fá skýra mynd af því hvað átti sér stað og hvar ábyrgðin lá fáum við fyrst og fremst vísbendingu um að enginn hafi haft heildaryfirsýn og að borgin og Barnavernd Reykjavíkur ætli að láta málið hverfa og láta eins og það komi þeim ekki við. Þessu fólki er nefnilega alveg sama. Það sem blasir við í Bakkakotsmálinu er ekki bara saga um eitt heimili eða eina stofnun. Það er saga um kerfi sem getur ekki svarað fyrir það sem gerðist. Saga um kerfi þar sem ábyrgð verður óljós þegar hún þarf hvað mest að vera skýr. Þegar þögn er svarið við alvarlegum spurningum um kerfislægt vandamál innan barnaverndarkerfisins, segir þögnin meira en þúsund orð. Þessi staða vekur upp fleiri spurningar en svör. Ef stærsta sveitarfélag landsins getur ekki sagt með skýrum hætti hvað gerðist innan barnaverndarkerfis sem það sjálft rekur, hvað segir það þá um uppbyggingu kerfisins? Hvað segir það um eftirlitið? Og hvað segir það um ábyrgðina?Höfundur var barn í Bakkakoti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Sjá meira