Ákall til ráðherra menningarmála og borgarstjóra Reykjavíkur Frédéric Boyer skrifar 16. mars 2026 14:02 Undanfarin sex ár hef ég haft þann heiður að gegna starfi dagskrárstjóra við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík – RIFF. Þegar ég gekk til liðs við hátíðina hreifst ég þegar í stað af hinni skýru sýn og þeirri elju sem mótað hafði RIFF í gegnum árin. Sú vinna sem hafði mótað hátíðina í mikilvægan alþjóðlegan menningarviðburð, bæði fyrir Ísland og hið alþjóðlega kvikmyndasamfélag, var eitthvað sem ég trúði staðfastlega á frá upphafi, og ég leit á það sem forréttindi að verða hluti af þeirri vegferð. Hátíðin vaxið ár frá ári Allar götur síðan hef ég séð hátíðina vaxa og þróast ár frá ári. Hún hefur styrkt stöðu sína innan íslensks menningarlífs og innan hins alþjóðlega heims kvikmyndanna. Það sem skapar RIFF sérstöðu er í senn samspil þess hve rótgróin hún er heimalandinu og um leið hversu opin hún er fyrir umheiminum. Á hverju ári færir hátíðin okkur nýjar uppgötvanir, nýjar raddir og ný samtöl sem auðga í senn hátíðina og gesti hennar. Í meira en tvo áratugi hafa íslenskir áhorfendur og fagfólk úr kvikmyndageiranum verið hjarta hátíðarinnar. Það er sérstakt ánægjuefni að sjá áhorfendum fjölga jafnt og þétt ár frá ári, sem endurspeglar hina römmu taug sem er milli RIFF og áhorfenda, og hlýhuginn sem hátíðin hefur áunnið sér í Reykjavík og víðar. Styður við íslenska kvikmyndagerð RIFF leggur ríka áherslu á að styðja íslenska kvikmyndagerð með Bransadögum þar sem kvikmyndagerðarfólk, framleiðendur og fagfólk úr fremstu röð í menningargeiranum koma saman, frá Íslandi og erlendis frá. Bransadagar eru vettvangur fyrir samtal, samstarf og fagleg samskipti sem bæði efla heimamarkaðinn og styrkja alþjóðlegt tengslanet hans. Hátíðin er mjög vel þekkt og nýtur virðingar víða um heim. Með samvinnu við kvikmyndahátíðir og aðra samstarfsaðila í Evrópu og víðar, þar á meðal samstarfsverkefnin SMART7 og NoJSe, er RIFF hluti af alþjóðlegu vistkerfi sem hlúir að kvikmyndagerðarfólki og styður við dreifingu kvikmynda og hugmynda þvert á landamæri. Verði metin að verðleikum Það er einlæg von mín að vinna okkar við hátíðina, og óeigingjarnt framlag fólksins sem stendur að baki henni, verði áfram metin að verðleikum. Með áframhaldandi og enn öflugri stuðningi ráðuneytis menningarmála, Reykjavíkurborgar og annarra samstarfsaðila getur RIFF haldið áfram að vaxa og dafna sem öflugur vettvangur þar sem kvikmyndir, listrænt samtal og alþjóðleg menning fái að dafna enn frekar samfélaginu til heilla. Það er þessi metnaður fyrir hönd kvikmyndagerðarfólks, áhorfenda, og menningarlífs Reykjavíkur og Íslands, sem er leiðarljósið í starfi mínu, og hátíðarinnar, ár hvert. Því sendi ég þetta ákall til stjórnvalda. Höfundur er dagskrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein RIFF Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar