Þjóðarleiðtogi sem enginn tekur lengur mark á. Til hvers er hann þá? Júlíus Valsson skrifar 14. mars 2026 23:31 Þegar Kristrún Frostadóttir tók við embætti forsætisráðherra hafði hún meðbyr. Almenningur á Íslandi var dauðfegnir að losna við Bjarna og Katrínu. Kristrún lofaði nýjum vinnubrögðum, auknu trausti á stjórnmálunum og skýrri forgangsröðun verkefna sem sameinuðu þjóðina fremur en að kljúfa hana. Í kosningabaráttu hennar var boðskapurinn skýr: að menn skyldu einbeita sér að efnahagsstöðugleika, húsnæðismálum og bættum lífskjörum almennings, en forðast ágreiningsmál sem gætu skapað djúpa pólitíska gjá. Nú, þegar nokkur tími er liðinn af kjörtímabilinu, hafa margir bent á að bilið milli loforða og raunverulegra ákvarðana ríkisstjórnarinnar hafi orðið meira en margir bjuggust við. Þetta hefur orðið til þess að alvarlegar spurningar hafa vaknað um trúverðugleika unga forsætisráðherrans. Efnahagsmálin Eitt helsta kosningaloforð hennar snerist um efnahagsmál. Kristrún lagði áherslu á að ná niður verðbólgu og létta okurbyrðum af heimilum. Hins vegar búa heimili enn við háa vexti og þráláta verðbólgu. Almenningur í landinu hefur enn ekki fundið fyrir þeim viðsnúningi sem lofað var. Skattamálin Í skattamálum hefur einnig komið fram hörð gagnrýni á forsætisráðherrann. Í kosningabaráttunni var lögð áhersla á að hækka ekki skatta á almenning. Síðar hafa hins vegar komið fram breytingar í ríkisfjármálum sem byggja að mestu á aukinni tekjuöflun ríkisins, og telja andstæðingar ríkisstjórnarinnar að þær gangi algerlega gegn fyrri yfirlýsingum. Húsnæðismálin Húsnæðismálin eru annað dæmi. Þar var talað um brýnar aðgerðir og skjóta lausn vandans. Marktækar aðgerðir komu þó ekki fram fyrr en töluvert síðar á kjörtímabilinu, og margir telja að framgangur málsins hafi verið mun hægari og aðgerðir máttlausari en gefið var til kynna fyrir kosningar. Staða ungs fólks á húsnæðismarkaðnum og staða leigjenda hefur lítið sem ekkert batnað. Staða fjármagnseigenda hefur hins vegar batnað til muna, og ekki sér fyrir endann á þeirri þróun. Evrópumálin En stærsta pólitíska ágreiningsmál þjóðarinnar snýr að Evrópumálunum. Fyrir kosningar lagði Kristrún áherslu á að stjórnmálin ættu að snúast um málefni sem þjóðin gæti sameinast um og varaði við því að keyra áfram deilumál sem gætu klofið þjóðina í tvær fylkingar. Evrópusambandsmálið var einmitt gott dæmi um slíkt deilumál. Þrátt fyrir það hefur ríkisstjórnin ákveðið að setja Evrópumálið á dagskrá með þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Með þeirri ákvörðun hefur eitt umdeildasta mála íslenskra stjórnmála á ný orðið miðpunktur pólitískrar umræðu. Fyrir marga kjósendur skiptir litlu máli hvernig þessi ákvörðun er réttlætt. Það sem vegur mun þyngra er að stjórnmálamaður sem lagði áherslu á að forðast klofning hefur sjálfur sett eitt umdeildasta mál íslenskra stjórnmála í brennidepil og stuðlað þannig sjálfur að alvarlegum klofningi í þjóðfélaginu, einmitt á tímum þegar samstaða þjóðarinnar er mikilvægust. Kristrún Frostadóttir sem þjóðarleiðtogi Þegar litið er yfir fyrsta hluta kjörtímabilsins eru stærstu vandamál Kristrúnar Frostadóttur sem forsætisráðherra ekki einstök pólitísk mistök. Fremur snýst málið um uppsafnað misræmi milli orðræðu og loforða fyrir kosningar og þeirra ákvarðana sem síðan hafa verið teknar í ríkisstjórn. Slíkt misræmi getur og hefur smám saman grafið undan því trausti sem er grundvöllur pólitísks trúverðugleika. Kristrún Frostadóttir nýtur ekki lengur þess trausts meðal þjóðarinnar sem hún naut fyrir síðustu kosningar, og það er afar vandséð hvernig hún ætlar að vinna það aftur. Líklega er ferli Kristrúnar Frostadóttur sem stjórnmálamanns lokið, sem er að mati höfundar mjög miður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar