Samtal hafið um Ísafjarðarflug Kristján Már Unnarsson skrifar 12. mars 2026 14:07 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Lýður Valberg Viðræður eru hafnar milli Icelandair og Vegagerðarinnar um framhald áætlunarflugs til Ísafjarðar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir of snemmt að segja til um hvernig þeim vindur fram.
Icelandair var eina félagið sem bauð í flugleiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, með tilboð upp á 3,5 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það var 2,2 milljörðum króna hærra en kostnaðaráætlun Vegagerðar sem hljóðaði 1,3 milljarða króna. Frá flugstöð Ísafjarðarflugvallar.Einar Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hét því í fyrra að flug yrði tryggt áfram til Ísafjarðar eftir að Icelandair tilkynnti að það hyggðist hætta flugi þangað haustið 2026. Ráðherrann lýsti svo yfir miklum vonbrigðum með tilboð Icelandair þegar kunngert var um það fyrir tveimur vikum. „Já, það er eitthvað samtal í gangi sem er mjög skammt á veg komið,“ svarar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, um framhald málsins. „Við erum náttúrulega bara með okkar rekstrarforsendur í því. Við þekkjum reksturinn á Ísafjarðarfluginu mjög vel og það er bara staða málsins og það er eitthvað samtal nýhafið.“ Icelandair hefur notað flugvélar af gerðinni Dash 8 Q200 í fluginu til Ísafjarðar.Sigurjón Ólason -Eruð þið tilbúnir að gefa eitthvað eftir varðandi hvað þið þurfið að fá í niðurgreiðslu? „Það eru náttúrulega ýmsar forsendur í þessu eins og til dæmis bara hvað varðar flugáætlunina og þess háttar. En það er allt of snemmt að segja til um hvernig þessu vindur fram,“ svarar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Icelandair Ísafjarðarbær Fréttir af flugi Samgöngur Byggðamál Reykjavíkurflugvöllur Tengdar fréttir „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innviðaráðherra útilokar ekki að tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur verði samþykkt þrátt fyrir að vera langt yfir áætlun. Tilboðið er það eina sem barst og hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna, það er ríflega tveimur milljörðum yfir áætlun Vegagerðarinnar. 27. febrúar 2026 20:57 Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni. 26. febrúar 2026 09:14 Bæjarstjóri sleginn yfir ákvörðun Icelandair Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir slæmt fyrir allt samfélagið á Vestfjörðum verði ekkert áætlunarflug þangað. Hún var slegin eftir fréttir gærdagsins en fundar með Icelandair seinna í vikunni um málið. 4. mars 2025 11:41 Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Flestir bendir til að Icelandair hefji á ný flug til Hornafjarðar í haust eftir að félagið reyndist vera lægstbjóðandi í útboði Vegagerðarinnar. Þetta gæti breytt forsendum þeirrar ákvörðunar Icelandair að hætta Ísafjarðarflugi á næsta ári. 30. apríl 2025 22:20 Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Sjá meira
„Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innviðaráðherra útilokar ekki að tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur verði samþykkt þrátt fyrir að vera langt yfir áætlun. Tilboðið er það eina sem barst og hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna, það er ríflega tveimur milljörðum yfir áætlun Vegagerðarinnar. 27. febrúar 2026 20:57
Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni. 26. febrúar 2026 09:14
Bæjarstjóri sleginn yfir ákvörðun Icelandair Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir slæmt fyrir allt samfélagið á Vestfjörðum verði ekkert áætlunarflug þangað. Hún var slegin eftir fréttir gærdagsins en fundar með Icelandair seinna í vikunni um málið. 4. mars 2025 11:41
Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Flestir bendir til að Icelandair hefji á ný flug til Hornafjarðar í haust eftir að félagið reyndist vera lægstbjóðandi í útboði Vegagerðarinnar. Þetta gæti breytt forsendum þeirrar ákvörðunar Icelandair að hætta Ísafjarðarflugi á næsta ári. 30. apríl 2025 22:20