Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. mars 2026 06:50 Ljóst þykir að jafnvel þótt átökin myndu enda í dag munu afleiðingar þeirra vara um langt skeið, enda hafa hvorki Bandaríkin né Ísrael útilokað frekari árásir síðar meir. Getty/Hassan Ghaedi Verð á Brent hráolíu er komið aftur yfir 100 dollara á tunnu og ríki út um allan heim íhuga nú aðgerðir til að mæta yfirvofandi orkuskorti vegna aðgerða Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran og hefndaraðgerða Írana.
Íranir hafa gefið í árásir á orkuinnviði í Mið-Austurlöndum og meðal annars ráðist á skip, hafnir og olíubirgðastöðvar. Stjórnvöld í Írak hafa greint frá því að öll starfsemi verði lögð niður tímabundið þar sem olía fer um, eftir árásir á höfnina í Basra. Skotið var á skip sem voru að ferja olíu sín á milli. Íbúum í Bahrain var sagt að halda sig heima við eftir árásir á olíutanka og þá voru öll skip látin sigla úr höfninni í Mina Al Fahal í Oman, sem er aðal olíuútflutningsmiðstöð landsins. Íranir hafa varað við því að menn ættu að gera ráð fyrir að olíuverðið muni fara yfir 200 dollara á tunnu. Sér ekki fyrir endann á átökunum Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að setja 172 milljónir tunna af olíu úr eigin birgðum inn á markaðinn en það mun vera þáttur í áætlun Alþjóðaorkumálastofnunarinnar um að setja samtals 400 milljónir tunna á markað. Stjórnvöld vestanhafs virðast að öðru leyti lítið vita hvað þau eru að gera; hvert markmiðið er með aðgerðunum gegn Íran, hversu lengi þær munu mögulega standa né hvernig þau hyggjast tryggja umferð um Hormuz-sund, eins og þau hafa lofað. Reuters og fleiri erlendir miðlar hafa haft eftir ónefndum embættismönnum að stjórnin í Íran standi enn traustum fótum og hafi almenning í landinu á sínu valdi. Litlar líkur séu á því að stjórnin falli. Stjórnvöldum vestanhafs hefur gengið afar illa að samræma skilaboð sín og virðast mögulega hafa gefist upp á því. Fyrr í vikunni sagði varnarmálaráðherrann Pete Hegseth að það væri undir Trump komið hvort nú væru upphaf, miðja, eða endalok átakanna.Getty/Kevin Dietsch Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur á sama tíma sagst vilja sjá nýja stjórn taka við og vera með í ráðum um skipan æðsta leiðtoga landsins. Hann hefur krafist „skilyrðislausrar uppgjafar“ Írana. Þá hefur hann haldið áfram að fullyrða að Bandaríkjamenn og Ísraelar séu búnir að „vinna“ stríðið og því sé mögulega næstum því lokið... en samt ekki. Á sama tíma og skotmörk í Mið-Austurlöndum standa í ljósum logum vegna hefndaraðgerða Írana, sagði forsetinn við Axios í gær að aðgerðum yrði bráðum hætt þar sem engin skotmörk væru eftir í Íran. Trump var spurður að því í gær hvort hann axlaði ábyrgð á árás Bandaríkjanna á skóla í Íran, þar sem um 170 börn létu lífið. „Ég veit ekkert um það,“ svaraði forsetinn. Ísraelsmenn hafa fyrir sitt leyti haldið áfram árásum á Beirút í Líbanon, í stríði sínu gegn Hezbollah. Þá segjast þau munu halda aðgerðum sínum gegn Íran áfram eins langt og þurfa þykir.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Íran Hernaður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira