KA upp um tvö sæti með algjörum risasigri Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2026 20:04 Einar Rafn Eiðsson skoraði átta mörk úr átta skotum í kvöld. VÍSIR/HULDA MARGRÉT KA-menn mættu í miklu stuði í Garðabæinn í kvöld og létu Stjörnumenn finna fyrir því, í fyrsta leik sínum eftir tapið gegn ÍR í undanúrslitum Powerade-bikarsins í síðustu viku.
KA vann leikinn í kvöld 38-21 og kom sér þannig upp í 4. sæti Olís-deildar karla í handbolta. Liðið er nú stigi fyrir ofan ÍBV sem og Aftureldingu sem tapaði í gær. KA er því með heimavallarrétt sem stendur, nú þegar tvær umferðir eru eftir fram að úrslitakeppninni. Stjarnan er hins vegar næstneðst með 10 stig, stigi á eftir Selfossi og Þór. Það var aldrei spurning hvernig færi í kvöld en KA var níu mörkum yfir í hálfleik, 20-11. Gestirnir héldu svo áfram að bæta við forskotið í seinni hálfleiknum. Einar Rafn Eiðsson var markahæstur KA með átta mörk úr jafnmörgum skotum, þar af fjögur af vítalínunni, og þeir Giorgi Dikhaminjia og Dagur Gautason skoruðu sjö mörk hvor. Markverðir KA voru einnig frábærir en Ágúst Elí Björgvinsson varði 13 af 30 skotum sem hann fékk á sig og Bruno Bernat varði 5 af 9. Hjá Stjörnunni var Benedikt Marinó Herdísarson markahæstur með sjö mörk og Ísak Logi Einarsson skoraði fimm.
Olís-deild karla Stjarnan KA Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira