Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2026 10:10 Lík íranskra sjóliða sem dóu þegar freigátunni IRIS Dena var sökkt undan ströndum Srí Lanka aðfaranótt miðvikudags. AP/Eranga Jayawardena Yfirvöld í Srí Lanka segjast reyna að „varðveita“ líf áhafnar annars íransks skips sem talið er í efnahagslögsögu ríkisins. Bandaríkjamenn sökktu freigátu undan ströndum Srí Lanka á dögunum en ráðamenn í Íran segja að því muni Bandaríkjamenn sjá eftir. Óljóst er hvort þetta skip sé herskip eða ekki.
Að minnsta kosti 87 létu lífið þegar áhöfn bandarísks kafbáts skaut tundurskeyti að freigátunni IRIS Dena á Inlandshafi aðfaranótt miðvikudags og sökkti henni. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði þetta í fyrsta sinn frá seinni heimsstyrjöldinni sem Bandaríkjamenn sökkva skipi óvinveitts ríkis með tundurskeyti. Sjá einnig: Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Skipinu var sökkt um nítján sjómílur frá hafnarborginni Galle. Áhöfn skipsins hafði verið í heimsókn í Indlandi við æfingar. 32 hefur verið bjargað og tíu er enn saknað. Efnahagslögsaga er ekki það sama og landhelgi og snýr að réttindum varðandi nýtingu auðlinda. Þó að skip séu í efnahagslögsögu ríkja þýðir það ekki að þau séu ekki á alþjóðlegu hafsvæði. Hægt er að benda á olíuflutningaskipið Marinera, sem stöðvað var af Bandaríkjamönnum í efnahagslögsögu Íslands í upphafi árs. Sjá einnig: Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Samkvæmt frétt Reuters var talsmaður ríkisstjórnar Srí Lanka spurður að því í morgun hvort ríkisstjórnin vissi af öðru írönsku herskipi í efnahagslögsögu ríkisins. Hann sagði svo vera og að verið væri að taka á ástandinu. „Við erum að gera okkar besta til að varðveita mannslíf,“ sagði Nalinda Jayatissa, umræddur talsmaður. Abbas Araqchi, utanríkisráðherra Íran, sagði í færslu á X í morgun að Bandaríkjamenn myndu sjá verulega eftir því að hafa sökkt skipinu. The U.S. has perpetrated an atrocity at sea, 2,000 miles away from Iran's shores.Frigate Dena, a guest of India's Navy carrying almost 130 sailors, was struck in international waters without warning. Mark my words: The U.S. will come to bitterly regret precedent it has set. pic.twitter.com/cxYiI9BLUk— Seyed Abbas Araghchi (@araghchi) March 5, 2026
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Srí Lanka Hernaður Tengdar fréttir Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Hernaðaryfirvöld í Íran skutu eldflaug á bandarískt olíuflutningaskip á Persaflóa, ef marka má írönsku fréttastofuna Tasnim. Fréttastofan segir eld loga í skipinu. 5. mars 2026 08:46 Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. 5. mars 2026 06:49 Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, segir stöðuna óljósa í Íran en Bandaríkjamenn grönduðu á miðvikudag freigátu þeirra á hafi úti og segjast ætla enn dýpra inn í landið. Í raun geti stjórnvöld lýst yfir sigri hvenær sem er. 5. mars 2026 00:03 Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira
Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Hernaðaryfirvöld í Íran skutu eldflaug á bandarískt olíuflutningaskip á Persaflóa, ef marka má írönsku fréttastofuna Tasnim. Fréttastofan segir eld loga í skipinu. 5. mars 2026 08:46
Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. 5. mars 2026 06:49
Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, segir stöðuna óljósa í Íran en Bandaríkjamenn grönduðu á miðvikudag freigátu þeirra á hafi úti og segjast ætla enn dýpra inn í landið. Í raun geti stjórnvöld lýst yfir sigri hvenær sem er. 5. mars 2026 00:03