Bækur bjarga mannslífum Þórunn Sigurðardóttir skrifar 4. mars 2026 09:32 Bækur og innihald þeirra hafa beinni og óhindraðri aðgang að tilfinningum okkar og vitsmunum en nokkuð annað, jafnvel tónlist sem flestir telja drottningu listanna, er skilyrtari og þarf oftast meiri viðbúnað, hljóðfæri, hljómburð, eða að minnsta kosti góða rödd ef vel á að vera. En bókin, pappír og blek er allt sem þarf til að koma hugsun og tilfinningu frá sér svo að aðrir geti notið. Listirnar bjarga mannslífum, alla daga, um allan heim. Ekki bara lífi þeirra sem þær stunda, menn syngja frá sér hamingju, dansa frá sér hömlur og menn skrifa frá sér þyngstu sorgir, vonbrigði og áföll. Og við sem móttakendur eignumst líka betra líf við að njóta listanna. Hversu margir skyldu hafa bjargað sálarheill sinni líkt og Egill Skallagrímsson þegar hann orti Sonatorrek og kom þannig frá sér sínum dýpsta harmi, og komst að lokum fram úr rekkju sinni til móts við sitt daglega líf að nýju? Hver þekkir ekki líknina sem er fólgin í að skrifa niður það sem þyngst hvílir á hjartanu? Það má því með sanni segja að bækur bjargi mannslífum. Þannig hefur mannkyn í gegnum aldirnar miðlað sinni sögu, sögu einstaklinga og sögu þjóða. Og sögurnar eru alla vega, þær eru auðskiljanlegar og þær eru óskiljanlegar. Að segja sögu, skýra eða óskýra, einfalda eða flókna, skemmtilega eða leiðinlega, það er inntak listarinnar. Stundum er þetta voðaleg glíma. Listin ruglar þá stilltu og stillir þá rugluðu. Og þó að margt sé gert án orða þá eru orðin, þegar þeim er raðað með hugsun niður á blað, þau eru tryggasti leiðarvísirinn að hjarta okkar og skilningarvitum, þau opna gáttir umfram það sem önnur listform ná að gera. Já, það eru ekki aðeins þeir sem skrifa sem eru að bjarga lífi sínu. Þeir sem lesa, þeir hafa í gegnum aldirnar notað bækurnar til að lækna, skilja, opna og gleðja. Engin lyf lækna með sama hætti og bækur gera, varanlega, án eftirmála, án aukaverkana. Þess vegna hefjum við nú heim bókarinnar hátt á loft, minnug allra þeirra góðu daga sem bækur hafa gefið okkur, glatt okkur og aukið okkur skilning, þekkingu og gleði. Sterk bókmenning er hryggjarstykkið í hverju samfélagi. Það er staðreynd að þröskuldurinn sem fólk þarf að stíga yfir til að gefa út bækur er ekki nærri eins hár hér og í flestum öðrum samfélögum, að skrifa er ekki frátekið fyrir þá sem teljast vera rithöfundar. Flestir sem finna hjá sér löngun til að skrifa bók, láta verða af því á einhverjum tímapunkti og oftar en ekki sér hún einn daginn dagsins ljós, gefin út af forlagi, höfundinum sjálfum, eða í formi hljóðbókar eða annarar tegundar nýmiðlunar. Jafnframt eru bækur algengustu jólagjafirnar hjá flestum fjölskyldum, allur almenningur hefur greiðan aðgang að bókum, bókasöfnun og hljóðbókum. Bækur eru þannig samnefnari þjóðarinnar og flest getum við ekki hugsað okkur tilveruna án bóka. Margir óttast að nú sé hætta á að þjóðin líti ekki lengur á bókina sem sinn besta vin. Þess vegna beinum við sjónum að bókinni og minnum á að návistir við bækur gleðja og gefa, við skulum ekki láta bóklestur verða tímaleysinu að bráð. Ekkert kemur í staðinn fyrir góða bók, þann gamla sið að lesa nokkrar síður fyrir svefninn skulum við heiðra og endurvekja, ef við höfum týnt honum. Góð bók er okkar besti vinur. Höfundur er leikstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókmenntir Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar