Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. mars 2026 12:00 Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins minnist Davíðs Oddssonar með hlýju. Vísir/Lýður Valberg Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að með fráfalli Davíðs Oddssonar fyrrverandi formanns flokksins, borgarstjóra og forsætisráðherra sé fallinn frá einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu íslenska lýðveldisins. Hún segir boð á heimili Davíðs fyrir jól eina af þeim minningum sem sitji eftir.
Morgunblaðið greindi frá andláti Davíðs í morgun en hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær, 78 ára að aldri. Davíð fæddist þann 17. janúar 1948, gekk í MR og fór síðar í lögfræði. Davíð var kjörinn í borgarstjórn 1974, varð borgarstjóri 1982 í níu ár til ársins 1991 þegar hann varð formaður Sjálfstæðisflokksins og sama ár forsætisráðherra. Því embætti gegndi hann í þrettán ár til 2004 en þá varð hann utanríkisráðherra í eitt ár þar til hann hætti í stjórnmálum árið 2005 og varð seðlabankastjóri. Árið 2009 varð hann ritstjóri Morgunblaðsins og hefur verið í því starfi síðan. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir tíðindin af andláti Davíðs hafa komið sér í opna skjöldu. „Ég heyrði þessi tíðindi í gærkvöldi og vitaskuld var mér verulega brugðið. Og ég hafði ekki heyrt af neinum aðdraganda. Þannig að einhvern veginn heldur maður alltaf að það muni allir verða manni samferða alla tíð í gegnum lífið, en það er ekki svo. Og þannig að mér eins og öllum landsmönnum var brugðið við þessi tíðindi.“ Fáir muni geta fetað í fótspor Davíðs Guðrún segir ljóst að fallinn sé frá einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu íslenska lýðveldisins. „Ég var ung manneskja, eða yngri þegar hann var við völd í íslenskri pólitík. Og fylgdist með honum, hvernig hann breytti Íslandi og þessum miklu hæfileikum hans og þessum óvenjulegu hæfileikum að ná til fólks. Að geta alltaf verið með puttann á púlsinum og hvernig hann mótaði samfélagið með hugmyndum sínum og forystu. Það er risastórt og það munu fáir geta fetað í þau fótspor aftur. Ef nokkur.“ Hún segir marga eiga góðar minningar af Davíð og ein af hennar minningum komi upp í hugann. Núna fyrir jólin þá bauð Davíð mér í heimsókn til sín á heimili sitt og við áttum þar góða stund saman þar sem við ræddum lífsins gagn og nauðsynjar bæði fortíð, nútíð og framtíð. Og hann var einstaklega hlýlegur og sýndi mér hlið á sjálfum sér sem að ég hafði ekki kynnst áður. Og núna vitaskuld við þessi tíðindi að þá er þessi stund mér mjög hjartnæm akkúrat núna.“
Tímamót Andlát Davíðs Oddssonar Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Reykjavík Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira