Söguskýringar Samfylkingarinnar Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar 28. febrúar 2026 07:30 Samfylkingin lofaði landsmönnum í aðdraganda kosninga að verðbólgan og vextirnir skyldu barin niður með sleggju. Ár er nú liðið frá því ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum en enn hefur enginn árangur náðst í þessum efnum. Engin vöntun er á afsökunum og árangursleysið iðulega allt einhverjum öðrum að kenna, nú síðast heimsfaraldri kórónuveiru. Á tímum heimsfaraldurs var breið samstaða um það í samfélaginu að ríkið beitti sér af fullu afli varðandi sóttvarnir og efnahagslegum afleiðingum þeirra. Ríkið skildi stíga ölduna og reyna eftir bestu getu að milda sveifluna og tryggja skjótan viðsnúning. Ekki voru þó allir á eitt um það hvernig skyldi staðið að þeirri sveiflujöfnun, og bar þá hæst á gagnrýni þeirra sem fannst ekki nóg að gert, mun meira þyrfti til af hálfu ríkisins. Segja má að fremst í flokki þeirra sem vildu meira hafi farið núverandi formaður Samfylkingarinnar, Kristrún Frostadóttir. Við upphaf heimsfaraldurs kallaði hún m.a. eftir því að ríkissjóður styrkti fyrirtæki í ferðaþjónustu í stað þess að lána þeim líkt og þá stóð til boða. Ríkissjóður hefði m.ö.o. átt að gefa fyrirtækjunum peninga í stað þess að lána þá og fá svo endurgreitt þegar betur stæði á hjá fyrirtækjunum. Þá gagnrýndi Þorgerður Katrín, formaður Viðreisnar, ríkisstjórnina fyrir að stíga ekki nægilaga stór skref. Saman lagði stjórnarandstaðan fram breytingartillögu við fjárlagafrumvarp ársins 2022 sem skilað hefði enn meiri halla á rekstri ríkisins. Árangur í augsýn Aldrei var kallað eftir því að gert yrði minna. Í dag tala Samfylkingarmenn hins vegar um „stórkallalegar örvunaraðgerðir“ og „stór hagstjórnarleg mistök“. Hvað má þá kalla þeirra eigin tillögur? Í það minnsta verður ekki séð að staða ríkissjóðs væri betri nú, verðbólga minni eða vextir lægri ef farið hefði verið eftir tillögum núverandi ríkisstjórnarflokka á tímum heimsfaraldurs. Þvert á móti. Til að leggjast á sveif með ríkinu lækkaði Seðlabankinn stýrivexti til að örva hagkerfið. Voru vextir lækkaðir of mikið? Voru þeir hækkaðir aftur of hægt? Kannski, en lítið fór fyrir gagnrýni á ákvarðanir bankans þá þegar enda þær teknar út frá þeim upplýsingum sem lágu fyrir á hverjum tíma og enginn sem gat séð fyrir með vissu það sem koma skyldi. Óvissan um framvindu faraldursins, stöðu alþjóðaviðskipta, jarðhræringa á Reykjanesi og innrásar Rússa í Úkraínu var enda mikil og kröftugur viðsnúningur hagkerfisins langt því frá tryggður. Lægri vextir, miklar launahækkanir á óvissutímum og mikill uppsafnaður sparnaður íslenskra heimila höfðu áhrif á eignaverð og eftirspurn og skyldi engan undra. Engum blöðum er um það að fletta að umsvifin í hagkerfinu urðu of mikil of hratt. Það var að einhverju leyti viðbúið og sá fórnarkostnaður sem við vorum tilbúin til að taka á okkur til að stemma stigu við neikvæð áhrif þeirra hremminga sem geysuðu. Engu að síður náðist mikill árangur í baráttunni við verðbólguna sem þessu fylgdi en hún hafði lækkað skarpt í aðdraganda Alþingiskosninga frá hápunkti hennar árið 2023. Vextir höfðu tekið að lækka og hallalaus ríkissjóður í sjónmáli strax árið 2025 þrátt fyrir allt. Betur fór en á horfðist í fyrstu. 10 af 10 í eftiráspeki Það er gott að vera vitur eftir á þótt það hafi æði lítið upp á sig. Sennilega hefði mátt draga hraðar úr þeim aðgerðum sem ráðist var í af hálfu ríkisins til að örva hagkerfið, verja heimilin og tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækja á meðan heimsfaraldri stóð. Kannski voru einhverjar þessara aðgerða jafnvel óþarfar, svona eftir á að hyggja, því kannski hefðu viðbrögðin við faraldrinum sjálfum ekki þurft að vera jafn íþyngjandi og þau voru. En þetta er lítið annað en heimspekileg vangavelta um ef og hefði. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum var verbólgan komin niður í 4,8%. Hún hefur svo setið föst í kringum 4% síðastliðið ár en tók svo kipp um áramót og mælist nú annan mánuðinn í röð í 5,2%. Í stað þess að líta í eigin barm kjósa talsmenn ríkisstjórnarflokkanna hins vegar að beina sjónum að því liðna, horfa fram hjá þeim árangri sem náðst hafði og kenna öllum öðrum um en sjálfum sér og eigin gjörðum. Enginn afgangur var af rekstri ríkissjóðs árið 2025, öllu heldur var bætt í hallann og dregið úr aðhaldi sem í dag er ekki neitt. Til að fjármagna öll útgjöldin voru svo skattar hækkaðir á venjulegt fólk og fyrirtækin í landinu og meira af því sama í pípunum. Nú er markmiðið ekki háleitara en svo að stefnt er að hallalausum fjárlögum árið 2027. Þótt verðbólga sé fyrst og fremst peningalegt fyrirbæri sem peningastefnan leikur lykilhlutverk í að takast á við gefur það ríkisstjórninni ekki lausan tauminn né bessaleyfi til þess að róa á móti bankanum með óábyrgum útgjaldaflaumi. Árangur næst mjög sennilega hvort heldur sem er, en ef Seðlabankinn er einn í baráttunni lengist stríðið og árangur næst talsvert seinna og með mun meiri tilkostnaði og sársauka fyrir heimilin í landinu en ef hagstjórnararmarnir hefðu unnið saman í átt að stöðugleika. Því miður dugar skammt að tala bara hátt um hallalausan ríkissjóð einhvern tímann í framtíðinni. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stefanía K. Ásbjörnsdóttir Mest lesið Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar