Albert kom inn á 100. mínútu og Fiorentina reddaði sér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2026 20:28 Innkoma Alberts Guðmundssonar hafði góð áhrif á Fiorentina í framlengingunni. Getty/Gabriele Maltinti/ Íslendingaliðin Fiorentina, Lille og Panathinaikos komust í kvöld áfram í Evrópukeppnum sínum eftir að hafa haft betur í framlengdum leikjum eða vítakeppni.
Fiorentina dugði að tapa 2-4 á heimavelli til að komast í sextán liða úrslit Samandsdeildarinnar en Lille vann 2-0 útisigur í Serbíu til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Panathinaikos komst áfram í Evrópudeildinni eftir sigur í vítakeppni á útivelli. Albert Guðmundsson hefur misst af síðustu leikjum Fiorentina vegna ökklameiðsla og hann horfði upp á sína menn lenda 3-0 undir á heimavelli á móti pólska liðinu Jagiellonia Bialystok. Bartosz Mazurek skoraði öll þrjú mörkin. Fiorentina vann fyrri leikinn 3-0 á útivelli og því þurfti að framlengja. Albert kom inn á völlinn á 100. mínútu og Fiorentina tryggði sér sætið í með því að skora tvívegis eftir að íslenski framherjinn kom inn á völlinn. Nicolo Fagioli skoraði fyrra markið á 107. mínútu og Moise Kean það síðara á 114. mínútu. Jesus Imaz skoraði fyrir pólska liðið fjórum mínútum síðar og því var mikil spenna í leiknum allt til leiksloka. Lokastaðan var 2-4 og Fiorentina vann því 5-4 samanlagt. Hákon Arnar Haraldsson lék fyrstu 95 mínúturnar þegar franska félagið Lille vann 2-0 útisigur á Rauðu Stjörnunni. Liðið var 1-0 yfir eftir venjulegan leiktíma eftir mark frá Olivier Giroud strax á fjórðu mínútu leiksins. Markið sem kom Lille áfram skoraði varamaðurinn Nathan Ngoy eftir níu mínútna leik í framlengingunni. Lille vann því 2-1 samanlagt og verður í pottinum þegar dregið verður í sextán liða úrslit Evrópudeildarinnar. Sverrir Ingi Ingason og félagar í Panathinaikos gerðu 1-1 jafntefli á útivelli á móti Viktoria Plzen eftir að hafa leikið manni færri síðustu fimmtán mínútur framlengingarinnar. Úrslitin réðust í vítakeppni sem Panathinaikos vann 4-3. Sverrir tók ekki víti.
Sambandsdeild Evrópu Evrópudeild UEFA Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira