Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Árni Sæberg skrifar 26. febrúar 2026 15:29 Stjórnendur fóru með deiluna við skattinn fyrir héraðsdóm og svo Landsrétt. Efri röð f.v.: Sigurður Hannesson, Magnús Ingi Einarsson, Sigurður Atli Jónasson, Neðri röð f.v. Bjarni Eyvinds Þrastarson, Magnús Bjarnason og Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason. kvika Íslenska ríkið hafði betur gegn fjórum fyrrverandi og tveimur núverandi lykilstjórnendum Kviku banka og bankanum sjálfum fyrir Landsrétti í dag, í deilu sem snerist um skattlagningu hagnaðar af áskriftarréttindum sem nam á bilinu 30 til 95 milljónum króna. Landsréttur taldi að telja hefði átt hagnaðinn fram sem launatekjur frekar en fjármagnstekjur.
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis upp úr klukkan 15 og staðfesti með honum dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp rétt fyrir jól árið 2024. Umræddir stjórnendur voru háttsettir innan bankans, en hafa allir, utan tveggja, horfið til annarra starfa á síðustu árum. Umræddir stjórnendur eru eftirfarandi: Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, þá framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og nú forstjóri Skeljar, Sigurður Hannesson stjórnarformaður Kviku og framkvæmdastjóri SI, Magnús Bjarnason þá framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar, nú eigandi MAR ráðgjafar, Magnús Ingi Einarsson þá framkvæmdastjóri bankasviðs, nú fjármálstjóri Skeljar, Sigurður Atli Jónsson, þá fyrrverandi bankastjóri Kviku, nú forstjóri Arctic Green Energy, Bjarni Eyvinds Þrastarson, enn framkvæmdastjóri fjárfestingabanka Kviku. Bankastjórinn hagnaðist um 95 milljónir Hagnaður flestra af sölu réttindanna nam um 70 milljónum króna. Um var að ræða áskriftarréttindi á árunum 2014 til 2018. Réttindin voru leyst út í gegnum einkahlutafélög stjórnenda árið 2016 með söluhagnaði upp á tæpar 30 milljónir króna og árið 2017 með hagnaði upp á tæpar 40 milljórnir króna. Hagnaður Sigurðar Atla bankastjóra, sem leysti áskriftarréttindi tvívegis til sín árið 2018 nam hins vegar samtals tæpum 95 milljónum króna. Þá var bankinn sjálfur krafinn um rúmlega 80 milljónir í leiðréttan fjársýsluskatt og tryggingagjald vegna tekjuáranna 2017, 2018 og 2019, þar sem réttilega hefði átt að telja sölu réttindanna til launagreiðslna. Allt að 42 milljónum króna meira í skatt Ágreiningur málsins snerist um hvort að ávinningur af áskriftarréttindunum skyldi teljast til tekna stjórnenda, og þar með skattlagðar eftir reglum um tekjuskatt, nokkuð sem þeir vildu ekki una. Í dómi héraðsdóms var vísað til þess að reglur um tekjur og kauprétti væru víðtækar og tækju til nýbreytni í starfstengdum greiðslum, svo sem þeim sem deilt væri um í málinu. Við ákvörðun um hvort tekjuskattsregla ætti við þyrfti að meta heildstætt hvort áhrif starfssambands stjórnenda og Kviku leiddu til þess að þeir öðluðust þessi réttindi. Áframhaldandi störf hjá bankanum væri „viðbótarröksemd“ við það að réttindi féllu undir reglur um kauprétti, en ekki skilyrði. Umrædd áskriftarréttindi hefðu eingöngu staðið örfáum einstaklingum úr hópi stjórnenda til boða vegna þess að þeir hafi verið starfsmenn Kviku banka hf. Það að greitt hafi verið endurgjald fyrir þau réttindi breytti ekki þeirri niðurstöðu að um væri að ræða tekjur samkvæmt valrétti. Því stóð endurákvörðun Ríkisskattstjóra á skattstofnum stjórnendanna, með þeim afleiðingum að þeir greiddu flestir 32 milljónir króna til viðbótar í skatt en Sigurður Atli 42 milljónir króna.
Kvika banki Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira