Völsungar drógu lið sitt úr keppni Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2026 13:03 Patrick De Wilde fær færri leiki en aðrir til að undirbúa lið sitt fyrir keppni í Lengjudeildinni í sumar. Getty/Subaas Shrestha Forráðamenn Völsungs á Húsavík hafa brugðið á það ráð að draga lið sitt úr keppni í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta.
Völsungur átti fyrir höndum leik við Gróttu á morgun og hefði svo átt að mæta Val á sunnudag og taka á móti Aftureldingu 7. mars. Ekkert verður af því og úrslit leikja liðsins við Þór og ÍA hafa verið þurrkuð út. Áður hafði kvennalið Tindastóls á Sauðárkróki einnig dregið lið sitt úr keppni í Lengjubikarnum. Í tilkynningu á Facebook-síðunni Græna hernum eru gefnar þær útskýringar á ákvörðun Völsungs að einfaldlega skorti mannskap til þess að spila leiki á þessum tímapunkti. Það hafði reynst erfitt að manna leikinn við Þór sem fór 10-0 og liðið tapaði einnig nokkuð stórt gegn ÍA, 5-1, á heimavelli. Í tilkynningunni segir: Völsungur hefur ákveðið að skrá sig úr Lengjubikar karla. Félagið er um þessar mundir skipað mjög ungum og efnilegum leikmönnum. Eldri og reyndari leikmenn hópsins hafa verið að glíma við meiðsli ásamt því sem erlendir leikmenn eru að koma til landsins núna á fyrstu dögum marsmánaðar. Á þessum tímapunkti er það mat þeirra sem standa að liðinu að best sé að skrá liðið úr keppni þar sem ekki verður komin heildarmynd á liðið fyrr en um miðjan marsmánuð. Stefnan er að spila æfingaleiki í mars- og aprílmánuði þannig að liðið verði klárt í bátana þegar bikarkeppnin hefst 28. mars og svo Íslandsmótið í lok apríl mánaðar. Völsungar héldu sér af öryggi uppi í Lengjudeildinni síðasta sumar þegar þeir enduðu þar í 7. sæti með 25 stig úr 22 leikjum. Eftir tímabilið kvaddi þjálfarinn Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og tók við kvennaliði Þórs/KA en við starfi hans tók Belginn Patrick De Wilde sem komið hefur afar víða við á sínum þjálfaraferli.
Lengjubikar karla Völsungur Lengjudeild karla Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjá meira