Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Kjartan Kjartansson skrifar 26. febrúar 2026 07:52 Um fjörtíu prósent reykingakvenna heimsins eru í Evrópu. Alþjóðaheilbrigðisstofunin hefur sérstaklega áhyggjur af því að auknar rafrettureykingar eyði árangri af tókbasvörnum undanfarinnar áratuga. Vísir/EPA Rúm fjórtán prósent evrópskra unglinga reykja svokallaðar rafrettur og er hlutfallið hvergi hærra á byggðu bóli. Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu segir það afleiðingu vísvitandi markaðsherferðar rafrettufyrirtækja sem beint sé að unglingum og ungmennum.
Dökk mynd af þróun reykinga í Evrópu er dregin upp í nýjum gögnum sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) birti í dag. Hægar gengur að draga úr þeim í álfunni en annars staðar í heiminum. Útlit er fyrir að 53 lönd Evrópu haldi sameiginlega stöðu sinni sem það landsvæði þar sem reykingar eru útbreiddastar til loka þessa áratugs. Tóbaksreykingar valda nú þegar um 1,1 milljón dauðsfalla í Evrópu á hverju ári. Á sama tíma banna aðeins átján af 53 Evrópuríkjum reykingar á öllum opinberum stöðum og í nítján þeirra er tóbak nú ódýrara en það var árið 2014. Sérstaklega hefur stofnunin áhyggjur af reykingum kvenna og unglinga. Evrópa er eina svæðið innan vébanda WHO þar sem markmið um þrjátíu prósent samdrátt í reykingum kvenna fyrir 2025 næst ekki. Reykingar kvenna hafa minnkað um tólf prósent frá 2010. Nú er svo komið að fjörutíu prósent fullorðinna reykingakvenna í heiminum eru evrópskar. Hvergi eru heldur reykingar á meðal unglingsstúlkna á aldrinum þrettán til fimmtán ára algengari. Áratugaárangur í hættu Um fjórar milljónir unglinga (13-15 ára) eru sagðar nota tóbaksvörur í Evrópu. WHO bendir sérstaklega á stórauknar rafrettureykingar evrópskra unglinga. Hún er hvergi meiri en í Evrópu þar sem 14,3 prósent unglinga á þessum aldri reyki rafrettur. „Þetta er ekki slys, þetta er afleiðing vísvitandi herferðar iðnaðarins sem beint er að ungu fólki með vörum með bragðefnum og fágaðri samfélagsmiðlamarkaðssetningu,“ er haft eftir Hans Henri Kluge, yfirmanni WHO í Evrópu í tilkynningu stofnunarinnar. Öll ríki ættu að fylgja fordæmi Danmerkur, Belgíu og Hollands og setja reglur um rafrettur, banna bragðefni og takmarka auglýsingar á þeim til að vernda framtíðarkynslóðir, að mati Kluge. „Áratugaárangur er í hættu nema lög haldi í við hraða þróun í nikótínlandslaginu,“ segir Kluge.
Heilbrigðismál Tóbak Sameinuðu þjóðirnar Rafrettur Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira