Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. febrúar 2026 08:06 Høiby játar að hafa ekki verið „neinn engill“ í sambandinu en neitar að hafa beitt Haukland ofbeldi. AP/Ane Hem Fyrrverandi kærasta Maríusar Borg Høiby, sonar Mette-Marit krónprinsessu, sagði fyrir dómi í gær að hann hefði kýlt hana í andlitið og ítrekað gripið um háls hennar á meðan sambandi þeirra stóð.
Høiby hefur verið ákærður fyrir fjölda brota, meðal annars fjórar nauðganir. Kærastan fyrrverandi, Nora Haukland, er hins vegar eina konan sem mun vitna gegn honum undir nafni. Aðrir þolendur hafa kosið nafnleynd. Haukland, sem er 28 ára áhrifavaldur, greindi frá því í gær að í eitt skipti hefði Høiby kýlt hana í kjálkann. „Ég man bara að hafa fallið í jörðina og hniprað mig saman. Svo sparkaði hann í bakið á mér og hélt áfram að öskra,“ sagði hún. Upptaka frá deginum var spiluð í réttarsalnum og mátti meðal annars heyra Høiby kalla Haukland „fokking ljúgandi hóru“. Haukland brotnaði niður þegar upptakan var spiluð. Sjálf sagðist hún ekki muna eftir öðru atviki sem átti sér stað í apríl 2023 og var lýst af vitnum. Þar greip Høiby um háls hennar og ýtti henni upp að ísskáp. „Það að hann greip um hálsinn á mér... það gerðist mjög oft,“ sagði Haukland hins vegar. Haukland greindi frá því að Høiby hefði verið afar stjórnsamur í sambandinu og viljað ráða yfir henni og gera lítið úr henni. Hann hefði meðal annars reynt að stjórna ferlinu hennar og hverju hún klæddist. Hann hefði til að mynda orðið afar reiður þegar hún klæddist bikiní í Ibiza, við upptökur af raunveruleikaþáttunum Girls of Oslo. Haukland sagðist hafa reynt að hjálpa Høiby eftir að þau hættu saman og meðal annars aðstoðað Mette-Marit við að finna hann þegar krónprinsessunni hafði ekki tekist að ná sambandi við hann í nokkra daga. Við komuna aftur til Skaugum, þar sem Hákon krónprins og Mette-Marit búa, hefði Høiby farið í sturtu en hún biðlað grátandi til hjónanna um að þau sendu hann í meðferð. Það hefði ekki borið árangur. Høiby sagði sjálfur fyrir dómi að hann hefði ekki verið „neinn engill“ í sambandinu en hann hefur neitað því að hafa beitt Haukland ofbeldi.
Mál Mariusar Borg Høiby Noregur Erlend sakamál Kynferðisofbeldi Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fleiri fréttir Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Sjá meira