Taktu þátt í að móta ungmennastefnu Íslands Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar 24. febrúar 2026 06:33 Eftir áratugalangt tal um að Ísland þurfi heildstæða ungmennastefnu er vinna loksins hafin við gerð fyrstu ungmennastefnu Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024 var kveðið á um að móta ætti slíka stefnu. Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, fól mér að leiða þá vinnu og hefur vinnan haldið áfram eftir að Inga Sæland tók við sem ráðherra. Ungmennastefnunni er ætlað að ná utan um þau málefni stjórnvalda sem snúa að ungmennum á aldrinum 13–30 ára. Á þessum árum eykst sjálfstæði fólks, fyrstu skref eru tekin inn í fullorðinsárin og grunnur lagður að virkri þátttöku í samfélaginu. Stefnan á að varpa ljósi á stöðu ungmenna, kortleggja núverandi aðgerðir stjórnvalda og tryggja að rödd ungs fólks hafi raunverulegt vægi í stefnumótun. Fyrsta skrefið er samráð. Leitað er til ungs fólks og annarra hagaðila eftir ábendingum um hvað við gerum vel og hvar þörf er á breytingum þegar kemur að stuðningi við ungt fólk á Íslandi. Áformaskjal hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem öllum gefst kostur á að senda inn umsögn. Ég vil sérstaklega hvetja ungmenni á aldrinum 13–30 ára til að taka þátt, en einnig foreldra, fagfólk og félagasamtök sem vinna með ungu fólki. Í áformaskjalinu eru settir fram sjö málefnaflokkar með leiðbeinandi spurningum. Við hvetjum ungmennaráð, nemendaráð, frjáls félagasamtök, skóla og aðra hópa ungs fólks til að halda fundi eða vinnustofur og skila sameiginlegri umsögn. Áhugasamir geta haft samband við undirbúningshópinn ef óskað er eftir kynningu á verkefninu. Að loknu samráði verður unnið úr umsögnum í samstarfi við ráðuneytin, sem jafnframt kortleggja þær aðgerðir sem nú þegar er verið að vinna að og snúa að markhópnum. Markmiðið er að ungmennastefnan verði skýr stefna stjórnvalda með raunhæfri forgangsröðun og ábyrgð á framkvæmd, byggð á samráði og raunverulegum aðgerðum. Umræða um málefni ungs fólks hefur á undanförnum misserum oft snúist um að bregðast við uppsöfnuðum vanda. Með heildstæðri ungmennastefnu gefst tækifæri til að horfa lengra fram á veginn, styrkja grunninn og móta markvissar aðgerðir sem stuðla að því að ungmenni á Íslandi hafi raunveruleg tækifæri til að blómstra. Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmundur Ari Sigurjónsson Samfylkingin Mest lesið Forstjórahringekjan Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir,Hildur Ösp Gylfadóttir Skoðun Tími byltingarinnar er runninn upp — Síðasta byltingin var 1994 Ásgeir Jónsson Skoðun Þetta er skrýtin latína Ingvar S. Birgisson Skoðun Af með hausana, burt með styttuna Sigurður Haraldsson Skoðun Ekki benda á mig Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Hagnýtar húðflúraforvarnir Gísli Garðarsson Skoðun Sporin hræða Snorri Másson Skoðun Reykjavík er hvorki gjaldþrota né ofurþétt Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Hvað ef við erum hrædd við ranga framtíð? Rakel Hinriksdóttir Skoðun Varnarbarátta Úkraínu og Rússlandsskatturinn Pawel Bartoszek Skoðun Skoðun Skoðun Latínan bjargaði íslenskunni minni Kayla Amy Eleanor Harðardóttir skrifar Skoðun Hagnýtar húðflúraforvarnir Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Þetta er skrýtin latína Ingvar S. Birgisson skrifar Skoðun Hvað ef við erum hrædd við ranga framtíð? Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Lesblinda og prófamenning Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Tími byltingarinnar er runninn upp — Síðasta byltingin var 1994 Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Forstjórahringekjan Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir,Hildur Ösp Gylfadóttir skrifar Skoðun Varnarbarátta Úkraínu og Rússlandsskatturinn Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Af með hausana, burt með styttuna Sigurður Haraldsson skrifar Skoðun Að standa með Úkraínu er að standa með okkur sjálfum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Taktu þátt í að móta ungmennastefnu Íslands Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Skipulag endurreisnar í Grindavík og annars staðar Sólveig Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Kjarni máls sem við forðumst að ræða Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hinn breytti heimur fjöl-skyldna Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Sporin hræða Snorri Másson skrifar Skoðun Ert þú nýr formaður vinstrisins? Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Skautað framhjá þjóðinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traustið er löngu farið úr velferðarkerfinu Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Til hamingju, Reykjavík! Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þess vegna er Svíþjóð að standa sig vel Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Galopið ávísanahefti skattgreiðenda í Hafnarfirði Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun Kjarabarátta Viðskiptaráðs Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Þriðja heimsstyrjöldin Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Af hverju er engin slökkvistöð í Kópavogi? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Hlutfall kennara í leikskólum er lögbundið – ekki skoðun Anna Lydía Helgadóttir skrifar Skoðun Þorpið okkar allra Andri Rafn Ottesen skrifar Skoðun Fyrirmyndir í starfsmenntun Lísbet Einarsdóttir skrifar Skoðun Máli lífslokalæknis enn ekki lokið – er Ísland réttarríki? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ekki plága heldur umbreyting - frá streymisveitum til gervigreindar Kristinn Bjarnason skrifar Skoðun Kaupmáttur lækkað í tuttugu ár Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ekki plága heldur umbreyting - frá streymisveitum til gervigreindar Kristinn Bjarnason skrifar