Að standa með Úkraínu er að standa með okkur sjálfum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 24. febrúar 2026 07:01 Í dag eru liðin fjögur ár frá því að Rússar hófu blóðugt landvinningastríð sitt í Úkraínu. Í þá 1460 daga sem liðnir eru síðan stjórnvöld í Kreml ákváðu að þverbrjóta alþjóðalög með innrás inn í fullvalda og friðsamt ríki, hafa íbúar Úkraínu mátt þola gegndarlausar árásir, oftast að næturlagi, sem beinast gegn venjulegu fólki og borgaralegum innviðum. Árásir Rússa á orkuinnviði hafa þann eina tilgang að brjóta niður baráttuþrek úkraínsku þjóðarinnar þegar miklar frosthörkur geisa á kaldasta tíma ársins. Þrátt fyrir stríðshörmungar, myrkur og kulda standa íbúar Úkraínu keikir og halda áfram staðfastri baráttu sinni fyrir frelsi og réttlæti. Þau eiga skilið alla okkar samstöðu og virðingu og það er mikilvægt að þau heyri hátt og skýrt að þau eiga stuðning okkar vísan. Þessum skilaboðum kom ég skýrt á framfæri í ávarpi mínu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf í gær. Þar undirstrikaði ég stuðning við aðdáunarverða baráttu úkraínsku þjóðarinnar gegn lögbrotum Rússa. Þá mun forsætisráðherra sömuleiðis sýna stuðning Íslands í verki og heimsækja Kænugarð í dag, ásamt öðrum leiðtogum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Það er líka mikilvægt að við hlustum eftir því sem úkraínska þjóðin er að biðja um, hvaða bjargir hún telur nýtast sér best í varnarbaráttu sinni gagnvart grimmdarverkum Rússa. Til að bregðast við ákalli Úkraínu mun Ísland áfram leggja sérstaka áherslu á stuðning í orkumálum í ljósi neyðarástands vegna ítrekaðra loftárása Rússa. Auk þess munu þrjú íslensk orkufyrirtæki innan tíðar senda búnað og varahluti til Úkraínu sem mikil þörf er fyrir í landinu. Við kunnum Landsneti, Veitum og Norðurorku miklar þakkir fyrir þennan stuðning sem í orðsins fyllstu merkingu mun færa þúsundum Úkraínubúa birtu og yl. Með þessum mikilvæga stuðningi hjálpum við Úkraínu annars vegar að bregðast við þeirri eyðileggingu sem orkukerfið verður fyrir og hins vegar að fyrirbyggja þær ömurlegu afleiðingar sem loftárásir Rússa valda. Loftvarnabúnaði er ætlað að tryggja öryggi borgara, verja mannslíf og mikilvæga innviði. Ákall Úkraínu um þennan stuðning er skýrt og því viljum við svara. Enginn þarf að efast um að þörfin er afar knýjandi. Kerfisbundnum árásum Rússa gagngert til að svipta úkraínskar fjölskyldur hlýju á köldum vetrarnóttum verður að mæta. Stuðningurinn fellur að þingsályktun Alþingis frá árinu 2024 um stefnu og stuðning Íslands við Úkraínu 2024-2028 sem samþykkt var án mótkvæða, en ríkisstjórn hefur einmitt lagt hana til grundvallar í allri sinni framgöngu gagnvart málefnum Úkraínu og unnið samkvæmt fjárlögum. Það er dýrmætt að finna fyrir ríkum stuðningi meðal þjóðarinnar við Úkraínu. Í nýrri könnun sem framkvæmd er með reglubundnum hætti í aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins kemur nefnilega fram að 77% Íslendinga eru sammála því að Úkraínu sé áfram veittur stuðningur, en óvíða mælist stuðningur við Úkraínu eins mikill og á Íslandi. Smáþjóð eins og okkar á allt undir að alþjóðalög og friðhelgi landamæra séu virt. Ef við hlaupumst undan ákalli Úkraínu um hjálp erum við í raun að svíkja okkur sjálf. Stríðið í Úkraínu gæti endað á morgun ef stjórnvöld í Kreml hefðu áhuga á friði. Því miður eru engin augljós teikn á lofti um að þau hafi raunverulegan áhuga á að binda enda á ofbeldið gagnvart Úkraínu eins og stöðugar árásir þeirra sýna. Úkraínska þjóðin þráir umfram allt réttlátan og varanlegan frið þar sem alþjóðalög eru virt og fullveldi tryggt. Úkraína stendur í stafni fyrir alla Evrópu, og þar með Ísland, í vörn fyrir þau gildi sem tryggja okkur frið og öryggi. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin standa þétt saman í stuðningi við Úkraínu, með frelsi og mannúð að leiðarljósi. Úkraína getur reitt sig á stuðning Íslands. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Innrás Rússa í Úkraínu Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar