Sinueldur við Elliðavatn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir, Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Jón Þór Stefánsson skrifa 22. febrúar 2026 15:39 Slökkviliðið náði að slökkva eldinn um sjöleytið í kvöld. Vísir/Vilhelm Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið. Um var að ræða fimmta útkall slökkviliðsins vegna sinuelds á einum sólarhring. Veðurfarið það sem af er ári hefur einkennst af miklum þurrki og úrkomuleysi. Fylgst var með gangi mála í vaktinni neðst í fréttinni. Fyrst um sinn var einn dælubíll sendur á vettvang og talið að hægt væri að ráða niðurlögum eldsins. Hins vegar tók eldurinn að dreifa sér og sást reykurinn út um allt höfuðborgarsvæðið. Allt tiltækt lið var boðað út á vettvang. Fólk er farið að hætta sér ansi nálægt eldinum.Vísir/Vilhelm Samkvæmt sjónarvotti var eldlengjan um tíma orðinn um kílómetra löng og teygði hún sig í átt að hinu sögufræga útivistarsvæði Guðmundarlundi. Mikið umferðaöngþveiti var á svæðinu vegna forvitinna vegfaranda og áttu viðbragðsaðilar erfitt með að komast að. Fólk þótti einnig standa ansi nálægt eldinum. Myndir frá lesendum Vísis sýna að reykurinn sást alla leið vestur í bæ að Háskóla Íslands og þá fannst lykt af eldinum alla leið að álverinu í Hafnarfirði. Á svipuðum tíma í gær kom upp eldur á Kjalarnesi og í nótt kviknaði sinueldur bæði í Norðlingaholti og við Vífilsstaðavatn í Garðabæ. Fyrr í dag kviknaði eldur á Reykjavíkurflugvelli. Reykurinn sést víða.Vísir/Brynjar Freyr Hér að neðan mátti fylgjast með vaktinni. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðuna.
Um var að ræða fimmta útkall slökkviliðsins vegna sinuelds á einum sólarhring. Veðurfarið það sem af er ári hefur einkennst af miklum þurrki og úrkomuleysi. Fylgst var með gangi mála í vaktinni neðst í fréttinni. Fyrst um sinn var einn dælubíll sendur á vettvang og talið að hægt væri að ráða niðurlögum eldsins. Hins vegar tók eldurinn að dreifa sér og sást reykurinn út um allt höfuðborgarsvæðið. Allt tiltækt lið var boðað út á vettvang. Fólk er farið að hætta sér ansi nálægt eldinum.Vísir/Vilhelm Samkvæmt sjónarvotti var eldlengjan um tíma orðinn um kílómetra löng og teygði hún sig í átt að hinu sögufræga útivistarsvæði Guðmundarlundi. Mikið umferðaöngþveiti var á svæðinu vegna forvitinna vegfaranda og áttu viðbragðsaðilar erfitt með að komast að. Fólk þótti einnig standa ansi nálægt eldinum. Myndir frá lesendum Vísis sýna að reykurinn sást alla leið vestur í bæ að Háskóla Íslands og þá fannst lykt af eldinum alla leið að álverinu í Hafnarfirði. Á svipuðum tíma í gær kom upp eldur á Kjalarnesi og í nótt kviknaði sinueldur bæði í Norðlingaholti og við Vífilsstaðavatn í Garðabæ. Fyrr í dag kviknaði eldur á Reykjavíkurflugvelli. Reykurinn sést víða.Vísir/Brynjar Freyr Hér að neðan mátti fylgjast með vaktinni. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðuna.
Slökkvilið Kópavogur Gróðureldar Gróðureldar á Íslandi Heiðmörk Gróðureldar í Heiðmörk Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira