Styðjum við STEM greinar í grunnskóla Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar 20. febrúar 2026 10:00 Nú þegar augu okkar beinast að stöðu íslenska skólakerfisins í samanburði við önnur lönd og ekki síður þeirri hnignun sem þar hefur átt sér stað á undanförnum árum megum við ekki missa sjónar á því að styðja áfram við öfluga raungreinakennslu. Íslensku álverin framleiða ál með lægst kolefnisspor í heimi. Mestu skiptir þar máli að raforkan sem notuð er við álframleiðsluna er endurnýjanleg orka sem losar ekki koltvísýring. En það er fleira sem kemur til. Íslensku álverin búa yfir miklum mannauði. Þar starfa sérfræðingar í iðngreinum, tæknigreinum og raunvísindum. Þeirra vegna er kolefnislosun framleiðsluferlanna sjálfra með því lægsta sem fræðilega er hægt að ná miðað við núverandi tækni. Daglega mæta þessir sérfræðingar nýjum áskorunum í viðleitni sinni að lækka kolefnisspor framleiðslunnar enn frekar. Innan álveranna á sér nefnilega stað mikil nýsköpun og frumkvöðlastarf, bæði þegar kemur að lækkun kolefnissporsins sem og bættri nýtingu hráefna. Fjöldi nýsköpunarfyrirtækja hefur náð að vaxa og dafna í tengslum við áliðnaðinn á Íslandi og víða er verið að skapa umhverfisvænni lausnir í álframleiðslu; nýsköpun sem teygir sig út fyrir landsteinana. Allt þetta góða og mikilvæga starf sem hér er upp talið byggir á sterku skólakerfi og þá fyrst og fremst sterkum grunni í tækni- og raungreinum. Það er í grunnskólanum sem við kveikjum áhuga nemenda á tækni og raungreinum og því miður er raungreinakennsla á undanhaldi í mörgum grunnskólum. Þar má benda á að samkvæmt nýjustu niðurstöðum PISA hefur hlutfall nemenda sem búa yfir afburðahæfni í náttúrufræði hríð lækkað og er nú einungis 2% þegar meðaltal OECD-ríkja er 7%. Tæplega 5% nemenda búa yfir afburðahæfni í stærðfræði þar sem meðaltal OECD er 8,7%. Samkeppnishæfi Íslands ræðst meðal annars af krafti og dugnaði til nýsköpunar í tækni og vísindum og þá ekki hvað síst vegna vel menntaðs tækni- og raungreinafólks. Grunnur að náttúrulæsi og áhuga á raungreinum er lagður í grunnskóla af vel menntuðum náttúrufræðikennurum og ekki hvað síst með því að leggja krefjandi verkefni fyrir efnilega nemendur. Gleymum því ekki, þótt umbótaverkefnin séu ærin og brýn í grunnskólum landsins. Höfundur er framkvæmdastjóri Samáls. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðríður Eldey Arnardóttir Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Sjá meira