Það mun enginn bjarga Íslendingum í þriðju heimsstyrjöldinni Jón Frímann Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 07:33 Í dag (16. febrúar 2026) samþykkti Alþingi íslendinga breytingar á lögum um Útlendinga. Þessi breyting, sem er haldið á lofti sem lagabreyting til þess að vísa umsækjendum um vernd á Íslandi, frá Íslandi ef þeir brjóta af sér er blekking. Þar sem umrædd lagabreyting er um svo miklu meira. Það er verið að þrengja skipulega að leið flóttafólks til þess að sækja um vernd á Íslandi. Helsta ástæðan fyrir þessari lagabreytingu er bull sem stenst ekki neina nánari skoðun (enda var ekki farið í neina nánari skoðun) og málinu var rutt í gegnum Alþingi eins og viðbjóðurinn sem þessi lagabreyting er og mun alltaf verða. Það er óumdeilanlegt að Dómsmálaráðherra Íslands er til skammar, eins og forverar hennar í sama embætti hafa verið síðasta áratugina. Fólk sem er án siðferðislegra viðmiða eða mannlegar samvisku. Skömmin og bölvunin mun fylgja þessu fólki það sem eftir er og þetta fólk á það skilið. Þær lagabreytingar sem hafa verið gerðar á lögum um útlendinga á Íslandi síðustu áratugina hafa allar verið í andstöðu við Alþjóðleg lög, sáttmála og mannréttindarsáttmála sem Ísland hefur skrifað undir frá því að það varð sjálfstætt ríki árið 1944. Núverandi lög, eins og þau voru samþykkt af Alþingi í dag er sérstaklega slæm útgáfa af grófu mannréttindarbroti af hálfu íslenskra stjórnvalda og er í heild sinni í andstöðu við Flóttamannasáttmála Sameinuðu Þjóðanna frá árinu 1951 (Convention Relating to the Status of Refugees, Sameinuðu Þjóðinar). Í fréttum er það nefnt að miðflokkurinn sé orðinn stór í könnunum á Íslandi. Það skal tekið fram að miðflokkurinn er ekki hæfur til þess að stjórna. Það að kjósa miðflokkinn er eins og að saga af sér vinstri fótinn vegna þess að það var verkur í hægri fætinum. Þeir sem hafa gleymt, þegar Sigmundur Davíð varð Forsætisráðherra á Íslandi. Þá var hann að senda út styrki með sms skilaboðum, sem er og verður alltaf lögbrot á góðri stjórnsýslu. Það er alveg sama hvað Sigmundur Davíð bullar í fjölmiðlum, hann er og verður alltaf óhæfur til þess að stjórna og það sama gildir um alla sem eru í miðflokknum. Í fréttum réttlætir Dómsmálaráðherra þessa lagabreytingu með því að á öðrum Norðurlöndum sé verið að gera svipaðar breytingar. Á öðrum Norðurlöndum hafa heimskir fasistar verið við völd eða haft áhrif á slíkar lagasetningar, sérstaklega þar sem minnihluta ríkisstjórnir hafa verið við völd. Afleiðingarnar hafa verið fleiri hatursglæpir í garð útlendinga, meira ofbeldi frá öfgafólki, ný-nasistum, fasistum og öðru misheppnuðu úr mannlegu samfélagi. Þetta hefur einnig sést á Íslandi á undanförnum árum og réttlætingar í Dómsmálaráðherra í fjölmiðlum og á Alþingi mun ekki bæta þá tölfræði. Enda er verið að gefa út að ofbeldi í garð útlendinga og flóttamanna er eitthvað sem ríkisstjórnin styður undir borðið og þá sérstaklega dómsmálaráðherra. Dómsmálaráðherra ætti að einbeita sér að því að koma í veg fyrir upprisu öfga-manna á Íslandi áður en þeir eyðileggja lýðræðið Íslandi varanlega. Það er hinsvegar hætta á því að þá tapi stjórnmálaflokkur dómsmálaráðherra atkvæðum í næstu kosningum. Það að höfða til öfgamanna er alltaf versta pólitíska stefnan. Vandamálið með glæpi flóttafólks eru eiginlega ekki til á Íslandi. Það verða alltaf einhverjir glæpir framdir, þá misjafnlega slæmir en réttlætingin til þess að breyta lögum um útlendinga með þeim hætti sem gert var er ekki og verður aldrei réttlætanleg. Fjöldi glæpa sem flóttamenn fremja á Íslandi er mun lægri en glæpir sem heimamenn fremja á hverju ári. Stjórnmálaflokkar sem standa í kerfisbundnu hatri gegn fólk vegna þess að það fæddist ekki á þeirri lengdargráðu þar sem Ísland er eiga skilið að vera þurrkaðir út af Alþingi Íslendinga. Það ætti einginn að kjósa miðflokkinn, nema að það sé ósk viðkomandi að Bandaríkin innlimi Ísland með hervaldi á næstu árum. Vegna þess að það er ljóst að það er óopinber stefna miðflokksins að fara í slíkt á næstu árum, komist þeir til valda. Hvað varðar stjórnmálaflokkinn Viðreisn. Þrátt fyrir jákvæða stefnu varðandi Evrópusambandið. Þá er ljóst að flokkurinn hefur svikið stefnu í mannréttindum og manngæsku. Það er nógu alvarlegt til þess að mínu áliti. Þá eigi þessi stjórnmálaflokkur ekki rétt á sér á Alþingi eftir næstu kosningar til Alþingis næst þegar þær verða. Það má einnig minna á þá staðreynd að innan nokkura ára, þó ekki mögulega fyrr en í upphafi árs 2040. Þá mun íslendingum fara að fækka gífurlega. Verði lokað á flutning fólks frá ríkjum utan EES/ESB/EFTA til Íslands, sem er nú þegar mjög lítill. Þá er hætta á því að Íslendingum muni fækka hratt eftir árið 2040. Þetta getur gerst hraðar, ef efnahagur Íslands breytist (sem mun örugglega gerast) og ferðamenn hætta að koma til Íslands (sem mun örugglega gerast). Þá er hætta á því að fólk sem sækir vinnu og er með búsetu á Íslandi til lengri eða skemmri tíma flytji til annara ríkja innan ESB/EES/EFTA þar sem vinnu er að fá. Þar sem flutningur þessa fólks til Íslands hefur haldið uppi fólks fjölgun fólks á Íslandi síðustu áratugina. Þá munu íbúatölur á Íslandi breytast hratt úr jákvæðum tölum í neikvæðar mínustölur. Síðan er einnig þriðja heimsstyrjöldin á leiðinni. Hvernig hún hefst og hvernig hún endar veit ég ekki. Ég veit einnig ekki hvaða ár þriðja heimsstyrjöldin hefst fyrir alvöru. Það er alveg ljóst hinsvegar að Íslandi, eins og fleiri ríkjum í heiminum verður ekki bjargað og enginn mun bjarga Íslandi þegar þriðja heimsstyrjöldin hefst. Þá bæði vegna þeirrar pólitísku stefnu sem er í gangi á Íslandi og víðar. Þetta er stefna sem skrifar hrun og það má segja að einhverju leiti sé þetta hrun réttlætanlegt, þar sem núverandi kerfi getur aldrei gert annað en að hrynja. Þar sem mannvonska, hvort sem hún er sett í lög eða ekki er aldrei réttlætanleg. Mannvonska af öllu tagi hefnir sín til lengri tíma. Sérstaklega þegar það er verið að fara reisa fangabúðir (rangnefnið er brottfaramiðstöð) til þess að hýsa fólk sem hefur verið vísað frá Íslandi á grundvelli fordóma, mannvonsku eða bæði og jafnvel fleiri þáttum en ég nefni hérna. Ég sé síðan í fréttum í dag (17. Febrúar 2026) að ríkisstjórnin ætlar sér að fara í stórfelld mannréttindabrot með því að senda fólk til þriðja lands. Slíkt er stranglega bannað undir Alþjóðlegum lögum, þar sem fólki sem er vísað frá Íslandi á eingöngu að vísa til síns heimalands. Dómsmálaráðherra ætti að segja af sér án tafar bara fyrir það eitt að mæla með þessu. Á Norðurlöndum er barist gegn þessum mannréttindabrotum af viðeigandi mannréttindahópum. Síðan ætti það að vera ljóst að „brottfaramiðstöð“ er ekkert annað en fangabúðir og hver sá sem mælir þeim bót er manneskja sem hefur enga siðferðiskennd eða manngæsku. Dómsmálaráðherra sem stundar mannréttindabrot, er eitthvað annað en dómsmálaráðherra. Mannréttindi eru ekki listi sem hægt er að velja og hafna úr eftir því hvar fólk er fætt eða hvaðan það kemur. Mannréttindi gilda jafnt um alla, óháð því hvaðan þeir koma til Íslands og annara ríkja í Evrópu. Það eru ákveðin ríki sem virða ekki mannréttindi af neinu tagi. Íslendinga hafa greinilega mikinn áhuga á því að vera á lista með þeim ríkjum. Miðað við pólitískar stefnur og það sem almenningur sættir sig við á Íslandi. Síðan má alltaf minna á það. Ef dómsmálaráðherra getur gert þetta við fátækan og valdalausan flóttamanninn. Þá getur dómsmálaráðherra einnig snúið sér að almenningi á Íslandi næst, ef það hentar pólitískum markmiðum í framtíðinni. Þarf ekki að vera núverandi dómsmálaráðherra (en maður veit aldrei, þegar siðleysið er orðið svona gífurlegt), þarf ekki að vera á næstu árum. Þegar fordæmið er sett í lög. Þá getur alveg komið að því að almenningur á Íslandi verður næstur á lista yfir fólk sem er sviptur mannréttindum á Íslandi og settur í fangabúðir án dóms. Þegar pólitískar aðstæður verða notaðar til þess að réttlæta slíkar stefnur á Íslandi. Höfundur er öryrki, búsettur í Danmörku. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Frímann Jónsson Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar