„Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. febrúar 2026 12:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti um helgina öryggisráðstefnuna í München en segja má með sanni að ráðamenn í Evrópu hafi haldið í sér andanum í aðdraganda hennar vegna heiftúðlegri skammarræðu J.D Vance varaforseta Bandaríkja við sama tilefni á síðasta ári.
Í ár var það Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem steig upp í pontu en kveða þótti við annan og ögn jákvæðari tón í þetta skiptið. Orðin voru vandlegar valin þó að innihald ræðanna tveggja hafi verið um margt áþekkt. Þorgerður Katrín sótti fund varnarmálaráðherra í morgun og segir andann góðan meðal evrópskra ráðherra. „En á hinn bóginn er auðvitað umhugsunarvert að þeir ganga svolítið út frá því að samvinnan verði fyrst og fremst á forsendum bandaríkjastjórnar og ákveðnum heimsmyndartengslum við MAGA, meðal annars um að loftslagsmál skipti engu máli, mannréttindamál sett til hliðar og beita tollum í milliríkjaviðskiptum. Evrópa er einfaldlega ekki sammála þessari stefnu,“ segir Þorgerður Katrín. Þorgerður segir róstusöm samskiptin yfir Atlantshafið vera að kyrrast og að þó að athygli hafi vakið að Rubio hafi ekki nefnt Grænland á nafn í tölu sinni séu línurnar að skýrast þar líka. „Mér skilst eftir samtöl við okkar vini í Danmörku og Grænlandi að þessi starfshópur er að virka. Það eru uppbyggileg samtöl að eiga sér stað um Grænland og um framtíð og öryggi í Norður-Atlantshafi. Þannig það er margt jákvætt að gerast en allir eru líka á tánum,“ sagði hún.
Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira