Sport

Skandall í krullu og ljót orð látin falla

Sindri Sverrisson skrifar
Marc Kennedy sást snerta steininn eftir að hafa sleppt honum, sem má ekki, en hann hefur líka verið áminntur fyrir orðaval sitt í garð mótherjanna.
Marc Kennedy sást snerta steininn eftir að hafa sleppt honum, sem má ekki, en hann hefur líka verið áminntur fyrir orðaval sitt í garð mótherjanna. Getty/Andrew Milligan

„Þú mátt fokka þér,“ sagði hinn kanadíski Marc Kennedy þegar Svíar sökuðu hann um svindl í krullu á Vetrarólympíuleikunum í gær. Myndband virðist þó sýna að Svíarnir hafi mikið til síns máls.

Krulla gefur sig út fyrir að vera mikil herramannaíþrótt en það ríkti ekki mikil virðing á milli manna í gær þegar Svíþjóð og Kanada mættust.

Svíar höfðu skorað tvö stig í röð og minnkað muninn í 7-6 þegar lætin hófust á svellinu. Oskar Eriksson sakaði þá Kanadamenn um að svindla, með því að snerta steininn eftir að hafa sleppt honum af stað á svellinu, og virtist ansi viss í sinni sök.

Myndband sýnir líka að Eriksson virðist hafa haft hárrétt fyrir sér en snertingin fór þó framhjá dómurum.

Það eru þó viðbrögð hins kanadíska Marc Kennedy sem hafa vakið meiri hneykslun en þau má sjá hér að neðan.

Kennedy kvaðst alsaklaus og sagði Eriksson hreinlega að fokka sér, en Svíinn svaraði honum að bragði og sagðist geta sýnt honum myndband eftir leikinn.

Kennedy hlaut aðvörun frá Alþjóða krullusambandinu í dag, ekki vegna meints svindls heldur vegna blótsyrðanna í garð Eriksson. Hann kvaðst sjá eftir orðavali sínu en ekki því að hafa svarað fyrir sig.

Segist snerta steininn ómeðvitað

„Ef að þetta gerist þá er það ekki eitthvað sem ég er meðvitaður um eða að gera til þess að stýra steininum. Þá er það bara algjörlega ómeðvitað og ekki eitthvað sem ég er að reyna,“ sagði Kennedy samkvæmt sænska miðlinum Expressen.

„Núna þarf ég bara að einbeita mér að því að reyna að láta þetta ekki gerast. Ef að fingur snertir hann þá veit ég að það hefur ekki áhrif á lokaniðurstöðuna en það er alveg ljóst að maður má bara ekki gera þetta. Ég ætla ekki að sitja hér og neita því að þetta hafi gerst en ég þvertek fyrir að það sé viljandi,“ sagði Kennedy.

„Það er algjörlega ómögulegt“

Niklas Edin, fyrirliði sænska liðsins, er á meðal þeirra sem trúa ekki útskýringum Kanadamannsins:

„Þær koma bara vegna þess að myndbandið birtist. En ég veit að hann hefur séð svona myndbönd áður og þetta er alveg pottþétt ekki án meðvitundar hjá honum. Þú snertir ekkert 20 kíló af graníti með fingrinum án þess að finna það. Það er algjörlega ómögulegt,“ sagði Edin.

Kanada vann leikinn í gær, 8-6, og var það þriðja tap Svía í þremur leikjum. Þeir unnu hins vegar 6-4 gegn Kína í dag en Kanada tapaði 9-5 gegn Sviss. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×