Þrenging gatna þrýstir umferð inn í hverfin Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar 14. febrúar 2026 09:01 Í umræðu um samgöngur í Reykjavík hefur skapast varasöm einföldun: að með því að þrengja götur og fækka akreinum muni bílaumferð minnka og fólk sjálfkrafa velja almenningssamgöngur. Reynslan sýnir annað. Umferð hverfur ekki, hún einfaldlega færist til - oft inn í íbúðahverfi sem ekki eru hönnuð fyrir slíkt álag. Afleiðingarnar eru þær að íbúðagötur verða að hjáleiðum, hávaði og mengun aukast og umferðaröryggi barna og gangandi vegfarenda versnar. Sú þróun gengur þvert gegn yfirlýstum markmiðum borgaryfirvalda um betra borgarumhverfi. Sama gildir um fyrirhugaðar þrengingar á stofnbrautum og öðrum umferðargötum vegna Borgarlínu. Stofnbrautir eru lykil innviðir sem halda umferð frá íbúðasvæðum. Þegar þeim er breytt í flöskuhálsa skapast tafir og aukin mengun – sem bitnar á fólki, atvinnulífi og jafnvel almenningssamgöngunum sjálfum. Valfrelsi ekki „þvingunarúrræði“ Það er ekki er hægt að þvinga fólk til að nota almenningssamgöngur. Val fólks ræðst af aðstæðum þess, ekki hugmyndafræði skipulagsyfirvalda. Fyrir marga er einkabíllinn ekki munaður heldur nauðsyn. Að reyna að breyta þeirri hegðun með þrengingum og hömlum er eins og að ætla að þvinga fólk til að líka við eitthvað sem það einfaldlega líkar ekki. Bilum fjölgar í borginni Borgarlínan verður að styrkja samgöngukerfið í heild sinni - ekki veikja það. Markmiðið hlýtur að vera raunverulegt val og jafnvægi í samgöngum. Talið er að á hverjum degi bætast við tugir bíla á götur höfuðborgarsvæðissins. Það að ætla sér að þrengja enn frekar að því gatnakerfi sem nú þegar annar ekki þessum fjölda bíla, með því að taka hluta stofnbrauta undir Borgarlínu mun ekki bæta samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, heldur gera þær enn verri. Það er mikil bjartsýni fólgin í þeirri skoðun að með tilkomu stærri strætisvagna undir merkjum Borgarlínu, muni fólk flykkjast út á stoppistöðvar og skilja einkabílinn eftir heima. Það á að öllum líkindum ekki eftir að gerast að því marki sem miðað er við. Þrátt fyrir þokkalegar góðar almenningssamgöngur í dag, kýs mikill meirihluti borgarbúa að ferðast um á einkabílum. Borgarlínu með breyttu sniði Þrátt fyrir allt þetta þýðir þó ekki að verið sé að mæla á móti bættum almenningssamgöngum. Þvert á móti. Flestir styðja öflugt, skilvirkt og aðlaðandi almenningssamgöngukerfi. En Borgarlínan má ekki vera byggð á þeirri forsendu að aðrir samgöngumátar verði látnir víkja. Slík nálgun skapar andstöðu, ekki samstöðu. Þess vegna þarf að leita leiða og hugsa Borgarlínukerfið upp á nýtt með það að markmiði að ekki sé verið að þrengja að almennri bílaumferð með tilkomu hennar. Finna þarf lausnir um legu og útfærslu sem styrkja almenningssamgöngur án þess að veikja aðra innviði samgöngukerfisins. Markmiðið hlýtur að vera raunverulegt val fyrir fólk – ekki þvingun. Aðeins þannig byggjum við upp samgöngukerfi sem nýtur trausts og þjónar borgarbúum öllum. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Flokks fólksins og situr m.a. í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar