Viðskipti erlent

Gera Wolt-sendla starfs­menn en á ó­hefð­bundnum kjörum

Kjartan Kjartansson skrifar
Wolt-sendill á hjóli. Finnska fyrirtækið vill halda sendlum sínum sem sjálfstæðum verktökum frekar en starfsmönnum sínum.
Wolt-sendill á hjóli. Finnska fyrirtækið vill halda sendlum sínum sem sjálfstæðum verktökum frekar en starfsmönnum sínum. Mika Baumeister

Heimsendingarfyrirtækið Wolt hefur í fyrsta skipti ráðið sendla sem starfsmenn í Finnlandi eftir að dómstóll skikkaði það til þess. Sendlarnir fá þó hvorki greitt á milli sendinga né fyrir að sendast á eigin bílum.

Stjórnsýsludómstóll í Finnland komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að líta ætti á sendla Wolt sem starfsmenn en ekki sjálfstæða verktaka. Wolt áfrýjaði og vill fá að halda áfram að ráða sendlana sem verktaka.

Í millitíðinni segir Joel Järvinen, framkvæmdastjóri Wolt í Norður-Evrópu, að hundrað sendlar verði ráðnir fyrir lok næsta mánaðar. Tuttugu sendlar hafi hafið bein störf fyrir fyrirtækið í síðasta mánuði.

Kjör sendlanna eru þó ekki þau sem ganga og gerast almennt í Finnlandi, að því er kemur fram í frétt finnska ríkisútvarpsins. Þeir fá aðeins greitt fyrir þann tíma sem þeir sendast með varning, ekki á meðan þeir bíða nýrra pantana. Þá þurfa þeir að vera á eigin farartæki en fá ekki greitt fyrir það.

Järvinen segir að sendlarnir geti ákveðið eigin vinnutíma. Laun þeirra byggist á áætluðum vinnutíma og vegalengdum sem þeir þurfa að ferðast. Sendlarnir fái að minnsta kosti tólf evrur á tímann á meðan þeir vinna, jafnvirði rúmra 1.700 íslenskra króna.

Wolt var stofnað í Helsinki árið 2014. Fyrirtækið lýsir þjónustu sinni sjálft þannig að það tengi þá sem vilja kaupa sér mat, vörur eða annan varning annars vegar og þá sem vilja selja hann og senda hins vegar.

Sendlar Wolt á Íslandi eru sjálfstæðir verktakar samkvæmt vefsíðu fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×