Bjórinn nú leyfður á vellinum Árni Sæberg skrifar 12. febrúar 2026 16:14 Nú má drekka bjór á íþróttaviðburðum. Vísir/Anton Brink Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur stýrihóps um breytingar á málsmeðferðarreglum um veitinga- og gististaði. Meðal breytinga er að áfengisveitingar eru leyfðar í tengslum við íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Í tilkynningu þess efnis segir að breytingar á reglunum miði að því að skýra ábyrgð og verkferla í stjórnsýslu borgarinnar og tryggja að íbúar og rekstraraðilar hafi skýrar og aðgengilegar leiðir til að bregðast við ábendingum um hávaða, opnunartíma og notkun borgarlands. Breytingarnar sem samþykktar voru í morgun séu eftirfarandi: 1. Í 3. grein verði felld út setning um að borgarráð geti takmarkað opnunartíma veitingastaða. Jafnframt verði bætt inn setningu um að íbúar geti leitað til heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem fer með umhverfiseftirlit, sem nær til hávaða frá veitinga- og skemmtistöðum. 2. Í 4. grein er skýrt frekar að klukkustund sem gefin er til rýmingar á veitingastöðum er tími fyrir gesti til að yfirgefa staðinn, en ekki sem viðbótaropnunartími. 3. Að 9. grein um að nektarstaðir séu óheimilir verði felld brott þar sem slík starfsemi er þegar bönnuð samkvæmt 4. grein laga númer 85/2007. 4. Að bætt verði við setningu í 8. grein um að fyrir útiveitingasvæði á borgarlandi þurfi afnotasamningur að fylgja umsókn um rekstrarleyfi. 5. 11. grein verði breytt á þann veg að áfengisveitingar í tengslum við íþróttaviðburði séu ekki bannaðar heldur heimilar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Markmiðið að skapa skýrt regluverk Í tilkynningu segir að varðandi breytingu á 11. grein segi í umsögn stýrihóps að tillagan taki mið af þeirri þróun sem orðið hefur í framkvæmd undanfarinna ára. Síðustu ár hafi borgarráð fallist á að heimila áfengisveitingar í tengslum við einstaka íþróttaviðburði og þannig veitt undanþágur frá núverandi banni við áfengisveitingum í tengslum við íþróttaviðburði. Einnig séu sum íþróttafélög með varanlegt rekstrarleyfi í veislusölum, sem hafi verið nýtt til sölu áfengis á íþróttaviðburðum. Þetta hafi skapað ófyrirsjáanleika og ójafnræði á veitingasölu íþróttafélaga á íþróttaviðburðum. „Með breytingunni er markmiðið að skapa skýrt, sanngjarnt og gagnsætt regluverk þar sem gætt er meðalhófs. Jafnframt er breytingunni ætla að tryggja ábyrga, skýra og vel útfærða umgjörð um áfengissölu á íþróttaviðburðum til að verja börn og ungmenni í samræmi við forvarnarsjónarmið.“ Þurfa leyfi fyrir umfangslitla veitingastaði Íþróttafélögum sem ekki hafa rekstrarleyfi er bent á að sækja þurfi um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki 2, sem sé fyrir umfangslitla áfengisveitingastaði. Sótt sé um hjá Sýslumanni höfuðborgarsvæðisins. Þegar umsóknir um rekstrarleyfi vegna veitingastaðar/gististaðar berast frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fari þær til meðferðar hjá Reykjavíkurborg, sem sé lögbundinn umsagnaraðili um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Fréttin hefur verið uppfærð.
Áfengi Borgarstjórn Reykjavík Áfengi í íþróttastarfi Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Fleiri fréttir Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Sjá meira