Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Kjartan Kjartansson skrifar 12. febrúar 2026 15:21 Veggspjald frá Svissneska þjóðarflokknum um innflytjendamál í Lausanne árið 2020. Á myndinni stendur „.það er of þröngt um okkur“ yfir teikningu af svissneskum borgurum umkringdum fólki í litum Evrópusambandsins. AP/Laurent Gillieron/Keystone Svisslendingar greiða atkvæði um það í sumar hvort setja eigi hámark á hversu margir þeir mega vera. Verði tillaga stærsta flokks landsins að veruleika mega landsmenn ekki verða fleiri en tíu milljónir um miðja öldina. Tilgangurinn er að fækka innflytjendum.
Staðfest var í gær að nógu margar undirskriftir hefðu safnast til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin um tillögu Svissneska þjóðarflokksins 14. júní. Íbúar Sviss voru 9,1 milljón manna á seinni hluta síðasta árs. Tæpur þriðjungur þeirra var fólk sem fæddist utan Sviss, flestir þeirra í löndum Evrópusambandsins. Tillagan felur í sér að ef mannfjöldinn nær 9,5 milljón geti ríkisstjórnin sett strangari kröfur um hælisveitingar, fjölskyldusameiningar, útgáfu dvalarleyfa og reynt að endursemja um alþjóðlega sáttmála. Svissneski þjóðarflokkurinn (SVP) er stærsti hægriflokkur Sviss og með flest sæti á þingi. Hann hefur lengi barist fyrir hertri innflytjendastefnu. Flokkurinn rökstyður tillögu sína meðal annars með því að mannfjöldahámarkið sé gott fyrir umhverfið, náttúruauðlindir, innviði og velferðarkerfið. Gagnrýnendur tillögunnar benda á að innflytjendur reiði sig á erlent vinnuafl í ýmsum geirum, sérstaklega á sjúkrahúsum, í ferðaþjónustu, byggingarvinnu og háskólum. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru tíðar í Sviss þar sem þröskuldur fyrir því að þær séu haldnar eru töluvert lægri en í flestum öðrum ríkjum.
Sviss Innflytjendamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira