Hetjan Tómas þyrfti aldrei að greiða fyrir öl: „Ég drekk ekki“ Aron Guðmundsson skrifar 12. febrúar 2026 08:32 Tómas fagnar hér mikilvægu marki sínu gegn erkifjendum Hearts í liði Hibernian. Vísir/Getty Ætla má að sigurmark Tómasar Bent Magnússonar í Edinborgarslagnum í fótbolta hafi skipað honum sess í hjörtum stuðningsmanna Hearts um ókomna tíð. Markið, sem Tómas tileinkar dóttur sinni sem von er á í heiminn hvað úr hverju, gæti reynst afar mikilvægt fyrir liðið í baráttunni um skoska meistaratitilinn.
Það ætlaði gjörsamlega allt um koll að keyra á Tynecastle Park leikvanginum á þriðjudaginn þegar að Tómas Bent, sem hafði komið inn á sem varamaður í seinni hálfleik, tryggði Hearts sigur í Edinborgarslagnum gegn erkifjendunum í Hibernian, með marki undir lok venjulegs leiktíma. „Þetta er náttúrulega bara geðveikt, svona margir að tryllast og það að þetta hafi gerst í þessum leik,“ segir Tómas í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Þessi sigurleikur hefur aðeins meiri þýðingu fyrir stuðningsmenn heldur en aðrir leikir, að vinna þennan Edinborgarslag.“ Og stigin þrjú sem Tómas tryggði sínu liði gætu reynst afar dýrmæt í lok tímabils en Hearts vermir toppsæti skosku deildarinnar um þessar mundir og er í seilingarfjarlægð frá risunum í Rangers og Celtic. Komið fram yfir settan dag Tómas tileinkaði dóttur sinni, sem von er á í heiminn á hverri, stundu markið með fagni þar sem Tómas lét eins og hann væri að vagga barni. Settur dagur var á föstudaginn síðastliðinn. Fagn Tómasar var úthugsaðVísir/Getty „Ég var búinn að ákveða það fyrir að ég myndi fagna svona ef ég myndi skora. Það er lítil stelpa á leiðinni, hún gæti bara komið hvenær sem er. Þetta var tileinkað henni. Þetta er allt nýtt fyrir mér. Fyrsta barn og maður er bara þokkalega nýkominn hingað út. Þetta eru ákveðin viðbrigði en bara gaman að vera í þessu öllu, ég er spenntur fyrir föðurhlutverkinu.“ Græðir lítið á því að þurfa ekki að kaupa bjór Í færslu á samfélagsmiðlum benti fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson, sem jafnframt er mikill áhugamaður um skoska boltann, að margir stuðningsmenn Hearts segðu Tómas Bent aldrei aftur þurfa greiða fyrir öl í borginni eftir sigurmarkið í Edinborgarslagnum. „Ég verð þá að byrja að drekka. Ég drekk ekki. Það er ákveðið klúður ef þetta er það sem maður fær fyrir að skora í þessum leik. En það er bara flott ef fólk splæsir á mig einhverjum drykk.“ Það fylgdi sigri Hearts gegn Hibernian ákveðinn meistarabragur. Ljóst er að baráttan verður hörð um skoska meistaratitilinn allt til loka tímabilsins. „Það er alveg búið að tala um það þannig, að geta sótt þessa sigra þó svo að leikurinn sé ekki fallegur. Þetta var einn af þeim sigrum og við höfum náð þeim fyrr á tímabilinu. Vonandi getum við haldið áfram að vinna leiki, tekið þetta leik fyrir leik.“
Skoski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira