Íslenskt táknmál er hjartað sem alltaf slær Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 11. febrúar 2026 08:30 Skrifað á Degi íslenska táknmálsins 11. febrúar. Ísland er afar heppið að eiga sitt eigið táknmál. Í heiminum eru talin vera um 300–350 táknmál. Samkvæmt Ethnologue eru yfir 150 þeirra skráð með fullri lýsingu, en mörg eru enn vanrannsökuð eða óskráð. Notendur táknmála í heiminum eru taldir vera um 80 milljónir samkvæmt World Federation of the Deaf og World Health Organization áætlar að um 450 milljónir manna í heiminum búi við heyrnarskerðingu. Íslenskt táknmál (ÍTM) er eitt þessara tungumála og nýtur lagalegrar verndar hér á landi samkvæmt lögum nr. 61/2011, þar sem það er jafnrétthátt íslensku. Málnefnd um íslenskt táknmál hefur það hlutverk að efla notkun málsins og styrkja stöðu þess og virðingu í samfélaginu. Að efla íslenskt táknmál er ekki aðeins mál málnotenda sjálfra – heldur snertir það þúsundir landsmanna. Að baki hverjum táknmálsnotanda standa fjölskyldur og aðstandendur hvaðanæva úr daglegu lífi táknmálsnotanda. Þegar táknmálið er gert sýnilegra í leik, starfi og námi eykst aðgengi, sjálfsmynd styrkist og lífsgæði batna. Það eru fjölmargar leiðir fyrir stjórnvöld og sveitarfélög til að styðja og efla íslenskt táknmál – bæði í orði og verki. Hver einasti stuðningur skiptir máli. Hafa má í huga þessi góðu atriðið á tékklista stjórnvalda og sveitarfélaga: skapið táknmálsvænt samfélag. virðið tungumálaréttindi sem mannréttindi eigið alltaf samtal við táknmálsfólk og skiljið engan eftir – hvorki í hönnun né þjónustu tryggið jafnræði og raunveruleg tækifæri til þátttöku fræðist um táknmál – þekking breytir samfélaginu styðjið íslenska táknmálið; stuðningur ykkar skiptir máli Eigið góðan táknmálsdag og til hamingju með íslenskt táknmál kæru landsmenn. Höfundur hefur verið heyrnarlaus frá 8 ára aldri, kynntist táknmáli fyrst 10 ára og lærði það af öðrum heyrnarlausum jafnöldrum sínum. Hefur barist fyrir táknmáli á Íslandi, kennt táknmál og búið til táknmálsnámsefni, sagt fréttir á táknmáli RÚV. Setið á Alþingi. Hefur mikla þekkingu á texta/táknmálsaðgengi og hjálpartækjum fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta. Höfundur er með alþjóðlega diplómu í frumkvöðlafræðum og leiðsögumaður í ferðaþjónustu með táknmál sem aðalmál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Táknmál Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira