Flott framtak Reykjavíkurráðs ungmenna Helgi Áss Grétarsson skrifar 10. febrúar 2026 07:45 Í dag, þriðjudaginn 10. febrúar, fer fram árlegur sameiginlegur fundur borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna þar sem teknar verða fyrir tillögur frá einstökum ungmennaráðum borgarinnar um málefni eins og lengingu opnunartíma sundlauga, aukinn opnunartíma félagsmiðstöðva, hækkun frístundastyrkja til barna- og ungsmenna og svo mætti lengi telja. Það er hefðbundið að borgarstjórn vísi einstökum tillögum Reykjavíkurráðs ungmenna til viðkomandi fagráða borgarinnar til frekari úrvinnslu en eins og verða vill þá fela tillögur Reykjavíkurráðs ungmenna oft í sér aukningu á útgjöldum borgarinnar. Viss tilhneiging hefur verið innan borgarkerfisins að breyta tillögum ungmennaráðanna, eða jafnvel fella. Það er jafnan gert til að hafa betri stjórn á útgjöldum borgarinnar. Einnig geta faglegar og hlutlægjar ástæður verið að baki slíkri niðurstöðu, svo sem að framkvæmd tillögu sé erfið eða útilokuð. Mál frá ungmennaráðunum hafa oft skapað pólitískar umræður á meðal kjörinna fulltrúa í einstökum fagráðum borgarstjórnar og um daginn var því fagnað af hálfu Reykjavíkurráðs ungmenna að tillaga, sem lögð hafði verið fram á sameiginlegum fundi ráðsins og borgarstjórnar í janúar 2025, hafi nýlega verið samþykkt í borgarstjórn. Það mál varðaði niðurfellingu strætógjalda fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri. Á þeim tíma sem ég hef verið kjörinn fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur hefur mér þótt flott hversu mikla vinnu ungmennin hafa lagt í sinn tillöguflutning. Það er því góð hefð að haldinn sé sameiginlegur fundur borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna. Með þessu styrkjum við lýðræðislega umræðu ásamt því að efla vitund ungs fólks um að það geti haft áhrif. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og er félagi í Miðflokknum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Í dag, þriðjudaginn 10. febrúar, fer fram árlegur sameiginlegur fundur borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna þar sem teknar verða fyrir tillögur frá einstökum ungmennaráðum borgarinnar um málefni eins og lengingu opnunartíma sundlauga, aukinn opnunartíma félagsmiðstöðva, hækkun frístundastyrkja til barna- og ungsmenna og svo mætti lengi telja. Það er hefðbundið að borgarstjórn vísi einstökum tillögum Reykjavíkurráðs ungmenna til viðkomandi fagráða borgarinnar til frekari úrvinnslu en eins og verða vill þá fela tillögur Reykjavíkurráðs ungmenna oft í sér aukningu á útgjöldum borgarinnar. Viss tilhneiging hefur verið innan borgarkerfisins að breyta tillögum ungmennaráðanna, eða jafnvel fella. Það er jafnan gert til að hafa betri stjórn á útgjöldum borgarinnar. Einnig geta faglegar og hlutlægjar ástæður verið að baki slíkri niðurstöðu, svo sem að framkvæmd tillögu sé erfið eða útilokuð. Mál frá ungmennaráðunum hafa oft skapað pólitískar umræður á meðal kjörinna fulltrúa í einstökum fagráðum borgarstjórnar og um daginn var því fagnað af hálfu Reykjavíkurráðs ungmenna að tillaga, sem lögð hafði verið fram á sameiginlegum fundi ráðsins og borgarstjórnar í janúar 2025, hafi nýlega verið samþykkt í borgarstjórn. Það mál varðaði niðurfellingu strætógjalda fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri. Á þeim tíma sem ég hef verið kjörinn fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur hefur mér þótt flott hversu mikla vinnu ungmennin hafa lagt í sinn tillöguflutning. Það er því góð hefð að haldinn sé sameiginlegur fundur borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna. Með þessu styrkjum við lýðræðislega umræðu ásamt því að efla vitund ungs fólks um að það geti haft áhrif. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og er félagi í Miðflokknum.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar