Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Kjartan Kjartansson skrifar 9. febrúar 2026 09:49 Teikning af fjöldamorðingjanum í Christchurch í fangaklefa sínum. AP/Stephanie McEwin Hvítur þjóðernissinni sem skaut 51 manns til bana í tveimur moskum í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019 vill draga játninguna sína til baka. Hann segist nú ekki hafa verið með réttu ráði þegar hann játaði vegna erfiðra aðstæðna í fangelsinu þar sem honum var haldið.
Áfrýjunardómstóll fjallar nú um kröfu fjöldamorðingjans um að hann fái að draga játningu sína til baka á þeim forsendum að hann hafi ekki verið í ástandi til þess á sínum tíma. Hann játaði á sig hryðjuverk, morð og morðtilraunir. Fallist dómararnir á kröfuna verður réttað í málinu. Morðinginn reynir einnig að áfrýja lífstíðardómi án möguleika á reynslulausn sem hann hlaut. Það er í fyrsta og eina skipti sem slíkri refsingu hefur verið beitt á Nýja-Sjálandi. Hann heldur því fram að aðstæður í fangelsi hafi gengið nærri geðheilsu hans og að hann hafi verið á barmi taugaáfalls þegar hann játaði. Um það hvers vegna hann viðurkenndi glæpi sína nokkrum mánuðum fyrir réttarhöldin við skýrslutökur bar hann því við að hann hefði ekki getað gert margt annað í stöðunni. Aðhyllist hvíta yfirburðahyggju og kenningu um „útskipti“ á hvítu fólki Maðurinn er Ástrali sem flutti til Nýja-Sjálands gagngert til þess að fremja fjöldamorð þar. Morðin voru þaulskipulögð og streymdi hryðjuverkamaðurinn beint frá þeim á samfélagsmiðli. Þau eru þau mannskæðustu í sögu Nýja-Sjálands. Í Christchurch skaut morðinginn 51 mann til bana við bænir í tveimur moskum. Yngsta fórnarlambið var þriggja ára gamall drengur. Morðinginn særði tugi manna til viðbótar. Í pólitískri yfirlýsingu sem morðinginn birti á netinu fyrir fjöldamorðin sagðist hann aðhyllast hvíta yfirburðahyggju og rasíska samsæriskenningu um „útskiptin miklu“. Hún gengur út á að vestræn elíta reyni vísvitandi að skipta hvítu fólki út fyrir innflytjendur, sérstaklega frá löndum þar sem múslimar eru í meirihluta. Á þeim tæpu sex árum sem liðin eru frá fjöldamorðunum hefur samsæriskenningin um útskiptin miklu orðið að rétttrúnaði hjá fjarhægriflokkum í Evrópu. Hún hefur meðal annars fengið hljómgrunn á Íslandi að undanförnu.
Nýja-Sjáland Erlend sakamál Hryðjuverk í Christchurch 2019 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira