Birgir Ómar Haraldsson er látinn Atli Ísleifsson skrifar 9. febrúar 2026 07:37 Birgir Ómar Haraldsson tók við stöðu framkvæmdastjóra Norðurflugs árið 2008. Vísir/Vilhelm Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, er látinn, 71 árs gamall. Hann lést eftir veikindi á líknardeild Landspítalans síðastliðinn laugardag.
Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun. Birgir Ómar fæddist í Reykjavík 24. janúar 1955, sonur Ingu Ólafar Arngrímsdóttur og Haraldar Snæland Sigurðssonar. Birgir Ómar lauk stúdentsprófi frá Tækniskólanum árið 1974 og starfaði svo hjá skipatæknideild Eimskips, þar sem hann var sjómaður á skipum félagsins. Hann stundaði svo nám við skipaverkfræði við Háskólann í Strathclyde í Skotlandi og útskrifaðist þaðan árið 1981.Birgir Ómar lauk svo meistaranámi í viðskipta- og flutningafræði frá City University Business School í London árið 1987 og síðar námi í verðbréfamiðlun og fasteignamiðlun. Eftir nám hafði Birgir Ómar eftirlit með skipaviðhaldi og umsjón með tækjum í landi hjá Hafskip og gerðist síðar rekstrarstjóri Jökla og tók þar við stöðu framkvæmdastjóra árið 1990. Birgir Ómar Haraldsson tók við stöðu framkvæmdastjóra Norðurflugs árið 2008.Vísir/Vilhelm Birgir Ómar tók við stöðu framkvæmdastjóra Norðurflugs árið 2008 og starfaði hann þar meðal annars með Hrafnhildi Jóakimsdóttur, eiginkonu sinni. Í æviágripum kemur fram að hann hafi kvænst Guðbjörgu Eggertsdóttur árið 1975 og áttu þau synina Eggert Odd og Harald Inga og dótturina Lindu Rós. Birgir Ómar giftist svo Hrafnhildi árið 1995, sem átti dótturina Katrínu Ellu sem Birgir leit ávallt á sem dóttur sína. Barnabörn Birgis Ómars eru ellefu.
Andlát Fréttir af flugi Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira