Evrópusambandið og öryggi Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar 9. febrúar 2026 10:32 Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að um fjórir af hverjum tíu Íslendingum telji að það geti verið góður kostur að gera Íslendinga að þegnum í Evrópusambandinu. Það er áhyggjuefni. Margt bendir til þess að þessi afstaða eigi rætur að rekja til hugmynda sem ríma illa við raunveruleikann, en hafa engu að síður náð að festa rætur í samfélaginu. Ein hugmyndanna er að öryggi Íslendinga gæti batnað við innlimun í Evrópusambandið. Ekkert er fjær lagi. Í fyrsta lagi skal því haldið til haga að óvopnuð þjóð getur ekki farið í stríð. Margir mundu segja að með því sé öryggi íbúa landsins best tryggt, þó svo það feli í sér aðlögun að kröfum þess stórveldis sem hverju sinni telur sig ráða mestu á Norður-Atlantshafi. Þannig hefur saga Íslands verið frá upphafi. Ekki er ljóst að til neinna bóta hefði verið fyrir nokkurn mann ef Íslendingar hefðu tekið þátt í hernaðarmenningu Evrópumanna og haft herlið til að skjóta á Jörund hundadagakonung sumarið 1809, eða Breta árið 1940. Tjónið hefði á hinn bóginn orðið töluvert. Undanfarna mannsaldra hefur sú staða verið uppi að Bretar og Bandaríkjamenn telja sig hafa nokkuð um það að segja hvað gerist á N-Atlantshafi. Bretar eru með öflugri herveldum í heiminum og Bandaríkin mun öflugri en nokkurt annað ríki eða ríkjasamband. Hafa þau lengi haft hernaðaraðstöðu á Íslandi og um það og fleira er til 75 ára gamall samningur. Skiptar skoðanir eru um þann samning á Íslandi, en Bandaríkjamenn sjálfir hafa aldrei viljað segja honum upp. Ólíkt Evrópusambandinu hafa Bandaríkjamenn ekki haft uppi óskir um yfirráð yfir náttúruauðlindum landsmanna eða að fá að ráða lögum og dómum í landinu. Þarna er óneitanlega mikill munur. Að þessu sögðu ættu Íslendingar að spyrja sig nokkurra spurninga. Ágirnist eitthvert ríki eða ríkjasamband, að Evrópusambandinu frátöldu, Ísland og auðlindir Íslendinga? Hefur eitthvað gerst sem bendir til þess að erlent ríki, eða ríkjasamband, að Evrópusambandinu frátöldu, vilji fá stjórnvald á Íslandi? Hvaða afleiðingar hefur það fyrir öryggi Íslendinga að fela erlendu ríkjasambandi stjórnvald á Íslandi, ríkjasambandi sem er upprennandi herveldi og á þessa dagana í blóðugu stríði við mesta kjarnorkuveldi heims? Hvaða hernaðarlegu skuldbindingar mun það hafa í för með sér fyrir Íslendinga á næstu árum og áratugum? Einföldu spurningarnar eru svo þessar: Dettur einhverjum í hug að Bandaríkjamenn og Bretar muni láta það yfir sig ganga að nokkurt ríki þeim andsnúið nái fótfestu á Íslandi og ógni þar með öryggi íslenska ríkisins? Dettur svo einhverjum í hug að öryggi Íslendinga sjálfra muni aukast við það að gerast þegnar í verðandi herveldi sem telur sjálfsagt framfaramál að elta uppi unga menn í þorpum og skógum A-Evrópu til þess að varpa þeim í sprengjuregn? Svörin við þessum spurningum eru misflókin og afdráttarlaust NEI við síðustu tveimur. Afleiðingin af því er að við eigum að hætta strax öllum verkum sem miða að því að færa vald frá íslenskum stjórnvöldum til Evrópusambandsins. Engin skref í þá átt eru til þess fallin að auka öryggi Íslendinga eða íslenska ríkisins. Höfundur er formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur Ólafsson Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar