Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Lovísa Arnardóttir skrifar 8. febrúar 2026 23:05 Takaichi er fyrsti kvenkyns forsætisráðherra landsins. Vísir/EPA Útlit er fyrir að stjórnarflokkar Japans, undir forystu Sanae Takaichi forsætisráðherra, hafi náð miklum meirihluta í neðri deild japanska þingsins. Samkvæmt nýjustu tölum hefur samsteypustjórn Takaichi unnið 352 af 465 sætum þingsins og þar af hefur flokkur hennar unnið 316 sæti.
Í frétt BBC um kosningarnar segir að Takaichi, sem er fyrsti kvenforsætisráðherra landsins, hafi sóst eftir skýru umboði með því að boða til kosninga aðeins fjórum mánuðum eftir að hún tók við sem leiðtogi flokksins. Árangurinn sé allt annar en árangur forvera hennar tveggja. Í þeirra stjórn hafi flokkurinn misst þingmeirihluta sinn vegna bæði spillingarmála og hækkandi verðlags. Flokkur hennar gæti tryggt sér allt að 366 af 465 sætum í neðri deild þingsins, samkvæmt spám japanska ríkissjónvarpsins. Í frétt BBC kemur einnig fram að Takaichi hafi fyrir kosningar lofað að segja af sér næði flokkurinn ekki meirihluta á þinginu. Í fréttinni segir að Takaichi hafi talað um að herða á lögum um innflytjendur, að hún ætli að endurskoða reglur um erlent eignarhald á japönsku landi og taka á hvers kyns vangreiðslum á sköttum og sjúkratryggingum af hálfu erlendra ríkisborgara. Í landi þar sem aðeins um þrjú prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar hafa gagnrýnendur hennar sakað hana um að ala á ótta og sundrungu með slíku tali. Í frétt BBC segir að undanfarið hafi samskipti við Kína, stærsta viðskiptaland Japans, verið stirð og sérstaklega eftir að Takaichi gaf í skyn í nóvember síðastliðnum að Japan gæti gripið til hernaðaraðgerða ef Kína réðist inn í Taívan. Þar kemur einnig fram að Takaichi hafi reynt að vingast við Donald Trump, sem hefur opinberlega lýst yfir stuðningi við hana. Það sé óvenjulegt skref af hálfu Bandaríkjaforseta en að þau virðist bæði sammála um að Japan þurfi að verja meiri fjármunum í varnarmál.
Japan Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira