Púslið sem vantar í ákall leikskólastjóra í Reykjavík Halla Gunnarsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 10:30 Í bréfi leikskólastjóra til borgaryfirvalda 3. febrúar sl. er lýst yfir vonbrigðum með að svokölluð Reykjavíkurleið í leikskólamálum hafi ekki gengið í gildi um áramót. Ekkert hafi þokast í að fá aðgerðir frá borginni eftir að borgin samdi við stéttarfélög starfsfólks leikskóla um styttri vinnuviku. Leikskólastjórar, kennarar og leiðbeinendur hverfi til annarra sveitarfélaga þar sem brugðist hafi verið við áskorununum af meiri festu. Ákall leikskólastjórnenda um aðgerðir er réttmæt. Jafnvel í leikskólum sem eru vel mannaðir má lítið út af bregða til að skipulagið fari á hliðina og það getur verið háð mínútum. Orðalagið hernaðarskipulag hefur verið notað af minna tilefni. Hins vegar er líka ábyrgðarhluti að kalla eftir því að tillögur gangi í gegn sem fela í sér varasamar grundvallarbreytingar á almennum leikskólum. Reykjavíkurleiðin gengur nefnilega út á að þvinga foreldra með fjárhagslegum refsingum og tekjutengingum til að stytta vistunartíma barna sinna. Kostnaðarsamir skráningardagar og skráningarstundir auka bæði á andlegt og fjárhagslegt álag foreldra, sem eru þegar að ganga í gegnum eitt viðkvæmasta skeið lífsins. Græna grasið í hinum sveitarfélögunum Dæmi eru um sveitarfélög sem hafa með mildi og varfærni breytt skipulagi leikskólanna til að mæta áskorunum vegna styttingar vinnuvikunnar. Þau eru þó fleiri sem hafa gert hitt, að keyra í gegn illa ígrundaðar breytingar sem valda skaða hvar sem borið er niður. Í Kópavogi lýsa foreldrar óánægju, álagi og stressi, mæður í meira mæli en feður.Á Akureyri fjölgaði foreldrum leikskólabarna í hópi þeirra sem þarfnast matargjafa fyrir jól eftir að breytingar á leikskólagjöldum og -þjónustu voru innleiddar þvert á mótmæli helstu stéttarfélaga á svæðinu. Tekjutengingar gera að verkum að foreldrar sem þarfnast aukaaurs, til dæmis til að halda jól, geta ekki tekið að sér aukavinnu, því þá hækka leikskólagjöldin á móti.Síðan eru það öll einstaklingsdæmin. Einstæða móðirin sem starfaði sem verkstjóri í litlu bæjarfélagi þegar ákveðið var að loka leikskólum kl. 14 einn dag í viku. Henni var einfaldlega tjáð að hún gæti valið á milli vinnunnar og þess að sækja barnið sitt. Amman sem er hætt að geta verið með barnabörnunum á sínum eigin forsendum því hún er komin í það hlutverk að sækja á leikskólann oft í viku til að dóttir hennar og tengdasonur geti látið daglega lífið ganga upp, praktískt séð og peningalega. Konan sem sótti um vinnu hjá sveitarfélaginu sínu og óskaði þess að fá vinnutíma sem gerði henni kleift að greiða viðráðanleg leikskólagjöld í sama sveitarfélagi, og fékk þvert nei. Í síðustu viku ræddi ég við mann af erlendum uppruna sem vinnur í einkafyrirtæki og eiginkona hans á Landspítala. Þau kynntu sér tillögur Reykjavíkurborgar og sáu fram á það að hún þyrfti að minnka við sig vinnu, einmitt á þeim vinnustað þar sem mönnunaráskoranir eru hvað mestar. Svona lítur græna grasið hinum megin út í raun og veru. Hernaðarskipulagið fært inn á heimilið Leikskólar eru mikilvægar mennta- og uppeldisstofnanir og leikskólastjórar eiga skilið fullan stuðning í að efla þá þætti starfseminnar. En tilvist leikskólanna verður aldrei slitin úr samhengi við samfélag og vinnumarkað. Leikskólar eru líka íverustaður barna á meðan foreldrar sinna vinnu og þar með grunnforsenda mikillar atvinnuþátttöku og jafnréttis kynjanna. Þær grundvallarbreytingar sem eru að verða á þjónustu leikskóla í fjölda sveitarfélaga geta haft víðtæk samfélagsleg áhrif. Þorri stéttarfélaga í landinu hefur varað við þessum breytingum, bæði vegna beinna áhrifa á félagsfólk og vegna samfélagslegra áhrifa. Því miður hafa of margar sveitarstjórnir ekki hlýtt á þau varnaðarorð og það er áríðandi að Reykjavíkurborg falli ekki í sömu gryfju. Það er ekki nýlunda að leikskólar séu opnir fleiri stundir í viku en starfsfólk vinnur. Einhvern tímann voru til leikskólar sem voru opnir í tólf klukkustundir á dag og fyrir ekki löngu síðan voru leikskólar í Reykjavík að jafnaði opnir til kl. 17. Þar kemur að lykilmálinu í ákalli leikskólastjóra, því sem ætti að vera megin viðfangsefnið, það er að leikskólarnir geti mannað sig í samræmi við vistunartíma barna, frekar en að stytta vistunartíma barnanna með framgreindum afleiðingum. Því það eina sem það gerir er að færa álagið og hernaðarskipulagið af herðum leikskólastjórnenda beint yfir á herðar foreldra. Að halda því fram að slíkt sé börnum fyrir bestu er fráleitt, hagsmunir og líðan barna geta aldrei verið slitin úr samhengi við hagsmuni og líðan foreldra þeirra. Svik við kjarasamninga Þær grundvallarbreytingar sem hafa orðið á starfsemi leikskólanna hafa allar gerst á milli kosninga. Enginn stjórnmálaflokkur fór fram í kosningum með áform um að breyta þjónustu leikskólanna og snarhækka leikskólagjöld. Þvert á móti skuldbundu sveitarfélögin sig til þess í tengslum við kjarasamninga sem voru undirritaðir 2024 að auka ekki álögur á barnafjölskyldur. Enn fremur stóð til að gera líf barnafjölskyldna betra á tímabili kjarasamninga, meðal annars með brúun bilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla. Hinar hækkandi leikskólagjaldskrár sveitarfélaganna eru svik við kjarasamningana og svik við barnafjölskyldur í landinu. VR er stærsta stéttarfélag barnaforeldra á Íslandi og við höfum sent inn vel ígrundaðar athugasemdir við Reykjavíkurleiðina. Við óskuðum einnig eftir fundi með hópnum sem vann tillögurnar en fengum aðeins að hitta hluta hans. Sjaldan hef ég upplifað jafn slaka áheyrn og nánast virðingarleysi gagnvart því félagsfólki VR sem þarna á hags að gæta. Fundið var að því að við kæmum ekki með tillögur til úrbóta samhliða gagnrýni okkar, sem við reyndar gerðum, og þegar við óskuðum eftir gögnum til að geta sett fram tillögur var fyrst sagt að það væri bara á færi sérfræðinga að fara yfir þau en síðan að við myndum fá þau send, sem við fengum aldrei. Það var skýrt að hagsmunir vinnandi foreldra og gildandi kjarasamningar höfðu að litlu, jafnvel engu, leyti verið teknir með í reikninginn af kjörnum fulltrúum Á borgarfulltrúum hvílir mikil ábyrgð. Kosningar eru handan við hornið og mörg þeirra eru með lítið eða laskað umboð. Krafa leikskólastjórnenda um að borgin keyri í gegn grundvallarbreytingar á leikskólum í Reykjavík örskömmu fyrir kosningar er bæði ósanngjörn og ólýðræðisleg. Krafa þeirra um aðgerðir hefur hins vegar alltaf verið sanngjörn og við í VR stöndum með henni. Og hafi borgaryfirvöldum tekist að finna leiðir sem taka stöðu foreldra með í reikninginn og ógna ekki almennum leikskólum, þá verðum við fyrst til að styðja við þær. Höfundur er formaður VR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Gunnarsdóttir Leikskólar Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun