María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Lovísa Arnardóttir skrifa 7. febrúar 2026 20:09 Arnar, María Ellen og Pétur. Aðsend María Ellen Steingrímsdóttir verður oddviti Viðreisnar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Varaþingmaður Viðreisnar vermir annað sæti listans og fótboltakappi það þriðja.
Þrír sóttust eftir fyrsta sætinu. Það eru Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu og betur þekktur sem Biggi lögga, María Ellen Steingrímsdóttir, lögfræðingur, og Pétur Björgvin Sveinsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar. María hlaut alls 374 atkvæði, þar af 240 í fyrsta sæti. María Ellen Steingrímsdóttir er lögfræðingur og var í fimmta sæti á lista flokksins í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022. Á kjörtímabilinu hefur hún setið í Menntaráði og Jafnréttis- og mannréttindaráði Kópavogsbæjar sem fulltrúi Viðreisnar. Gott að uppskera eftir góða baráttu „Mér líður vel, þetta kom mér svolítið á óvart en ég er bara svo þakklát fyrir traustið sem mér er sýnt,“ segir María Ellen í samtali við blaðamann á staðnum. Það sé gaman að uppskera eftir alla vinnuna sem hún hefur lagt í prófkjörið. „Maður fer auðvitað af stað í svona baráttu með það að leiðarljósi að vinna en þetta er erfið barátta með frábæra meðframbjóðendur sem eru frábærir og flottir. Það gat brugðið til beggja vona, áttaði ég mig alveg á.“ Fullt hús hjá Viðreisn. Aðsend Hún segir helstu málefni sín lúta að ungu fólki og barnafjölskyldum. „Mig langar til þess að endurskoða Kópavogsmódelið og forsendur þess, mig langar til þess að stuðla að uppbyggingu húsnæðis fyrir ungt fólk í bænum, mig langar til að minnka sundrung og átök varðandi uppbyggingu húsnæðis í Kópavogsbæ,“ segir hún og að það virðist sem svo að alltaf þegar skóflu sé stungið niður í bænum verði allt brjálað. Hún segist sömuleiðis kalla eftir meira íbúasamráði. Hún segist ekki vilja afnema Kópavogsmódelið heldur vilji hún lækka gjaldskrána. „Mér þykir ekki gott að Kópavogsbær sé með hæstu leikskólagjöld á landinu,“ segir hún og að á sama tíma og önnur sveitarfélög hafi stuðst við sömu hugmyndafræði rukki þau ekki eins mikið. Hún hafi sem dæmi greitt sjálf síðustu mánaðamót 53 þúsund fyrir leikskólavist barns síns. Útilokar ekkert María Ellen segist ekki útiloka neitt í meirihlutaviðræðum. „Mér er sama hvaðan gott kemur. Það er bara eitthvað sem framtíðin þarf að bera í skauti sér. Ég útiloka ekkert. Viðreisn stendur fyrir frjálsu samfélagi, almannahagsmunum fyrir sérhagsmuni og það er það sem við ætlum að keyra á inni í Kópavogi. Sýn Viðreisnar verður að skína í Kópavogi. Það varðar jafnrétti, frjálskyndi og öflugt samfélag þar sem við getum spilað saman sem heild,“ segir María Ellen. Pétur og Arnar á lista Sólveig Rán, formaður kjörstjórnarinnar kynnti niðurstöðurnar á viðburði Viðreisnar sem haldinn var á 27 matbar í Kópavoginum. Gestir og frambjóðendur ræddu málin fyrir tilkynninguna, en þeirra á meðal voru Sigmar Guðmundsson, þingmaður, og ráðherrarnir Hanna Katrín Friðriksson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Alls voru 823 atkvæði greidd sem samsvarar 76 prósenta kjörsókn. Einungis einn skilaði auðu atkvæði. Áður en efnt var til prófkjörs voru rúmlega þrjú hundruð á kjörskrá. Pétur Björgvin Sveinsson er í öðru sæti listans. Hann hlaut alls 336 atkvæði sem samsvarar 43 prósent atkvæða. Arnar Grétarsson, fyrrverandi fótboltamaður og nú þjálfari, er í þriðja sæti. Hann fékk alls 319 atkvæði. Alls voru sjö frambjóðendur í sætin þrjú. Það voru Jóhanna Pálsdóttir, Ísak Leon Júlíusson, Birgir Örn Guðjónsson og Ester Halldórsdóttir.
Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sjá meira