Erlent

Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum

Eiður Þór Árnason skrifar
Hákon krónprins Noregs og Mette-Marit krónprinsessa við Nóbelsverðlaunaviðburði í Osló árið 2024.
Hákon krónprins Noregs og Mette-Marit krónprinsessa við Nóbelsverðlaunaviðburði í Osló árið 2024. EPa//STIAN LYSBERG SOLUM

„Við skiljum þau sterku viðbrögð sem fólk hefur sýnt vegna þess sem fram hefur komið síðustu daga.“ Svona hefst ný yfirlýsing frá norsku konungsfjölskyldunni en styr hefur staðið um krónprinsessuna Mette-Marit eftir að skjöl vörpuðu ljósi á samskipti hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann varð dæmdur fyrir kynferðisafbrot.

Krónprinsessan er sögð vilja greina betur frá því hvað átti sér stað og útskýra sína hlið mála en sé ókleift að gera það þessa stundina. „Krónprinsessan er í mjög krefjandi stöðu. Hún væntir skilnings á því að hún þurfi tíma til að ná áttum.“

Hún er sögð fordæma harðlega misnotkunartilburði Epsteins og glæpsamlegt athæfi hans. „Henni þykir mjög leitt að hafa ekki áttað sig fyrr á því hvers konar maður hann var.“

Sér eftir því að hafa sett konungshjónin í erfiða stöðu

„Ég er með mikla eftirsjá vegna vináttu minnar við Jeffrey Epstein. Það er mikilvægt fyrir mig að biðja alla þá sem ég hef valdið vonbrigðum afsökunar. Sumt af því sem fram kemur í skilaboðunum milli mín og Epsteins endurspeglar ekki þá manneskju sem ég vil vera. Ég biðst einnig afsökunar á þeirri stöðu sem ég hef sett konungsfjölskylduna í, sérstaklega konunginn og drottninguna.“

Mette-Marit hefur áður beðist afsökunar á tengslum sínum við Epstein en skjöl sem birt voru fyrir um viku sýna að hún hafi átt í samskiptum við hann lengur en hún hafði áður gefið út. Þá hefur hún viðurkennt að hafa dvalið á heimili Epsteins á Palm Beach í Flórída árið 2016. Nafn hennar kemur fram nokkur hundruð sinnum í Epstein-skjölunum svokölluðu sem bandarísk yfirvöld söfnuðu í tengslum við rannsóknir á málum Epsteins og birtu í kjölfarið opinberlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×