Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2026 13:44 Meðlimir öryggissveita að störfum fyrir utan moskuna. Vitni segist hafa séð árásarmenn skiptast á skotum við verði við moskuna fyrir sprenginguna. AP/Anjum Naveed Að minnsta kosti 31 er látinn og 169 eru særðir eftir stóra sprengingu í mosku sjíta í höfuðborg Pakistan í dag. Fjölmargir voru við bænir í moskunni þegar sprengingin varð og leikur grunur á um að maður hafi sprengt sig í loft upp þar inni, eða rétt fyrir utan. Einhver vitni segjast hafa heyrt skothríð fyrir sprenginguna.
Þá óttast yfirvöld að tala látinna muni hækka í dag en margir hinna særðu eru sagðir í alvarlegu ástandi, samkvæmt AP fréttaveitunni. BBC hefur eftir manni sem særðist í árásinni að hann hafi heyrt skothríð skömmu áður en sprengingin varð í moskunni. Bænir hafi verið nýbyrjaðar og þegar fólk beygði sig til jarðar hafi stór sprengja sprungið þar inni. Hann sá særða og látna á víð og dreif og telur sig heppinn að hafa ekki dáið sjálfur. Annað vitni sagði blaðamanni BBC að hann hefði séð tvo árásarmenn nálgast inngang moskunnar, þar sem sex hafi staðið vörð. Vitnið segir að árásarmennirnir hafi fellt tvo verði áður en verðirnir svöruðu skothríðinni. Þá segir vitnið að annar árásarmannanna hafi flúið en hinn hafi komist inn í moskuna. Þar hafi hann þó verið skotinn og í kjölfarið hafi hann sprengt sprengjuvesti sem hann var klæddur. Þessi frásögn hefur ekki verið staðfest af yfirvöldum. Nokkrir hópar koma til greina Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni en nokkrir hópar þykja koma til greina. Helstir þar á meðal eru pakistanskir Talibanar (TTP) og Íslamska ríkið í Khorasan (ISKP). Báðir hópar hafa gert mannskæðar árásir gegn sjítum í Pakistan. Aðskilnaðarsinnar í Balokistan (BLA) hafa einnig gert nokkrar árásir í Pakistan að undanförnu. Hópurinn gerði nýlega fjölda samræmdra árása víðs vegar í Balokistan og myrtu um fimmtíu manns í þeim árásum.
Pakistan Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira