Hvað verður um hugmyndafræði leikskólans? Sara Margrét Ólafsdóttir og Bryndís Gunnarsdóttir skrifa 5. febrúar 2026 13:00 Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Hann er hvorki barnagæsla né undirbúningur fyrir „alvöru nám.“ Leikskólinn er menntastofnun með eigin hugmyndafræði og námskrásem byggir á þeirri sýn að börn eigi rétt til fullgildrar þátttöku í samfélagi leikskólans. Hlutverk leikskólakennara er meðal annars að skapa börnum tækifæri til að læra og skilja umhverfi sitt, stuðla að því að nám fari fram í leik og skapandi starfi, þar sem áhugi og frumkvæði barna fær að njóta sín.Í Aðalnámskrá leikskóla er áhersla á að leikur sé megin námsleið barna. Í leik rannsaka börn nánasta umhverfi sitt, prófa hugmyndir, vinna úr reynslu og þróa bæði félagsfærni og tungumál. Þau læra í samskiptum við hvert annað. Þau nota fjölbreyttar leiðir til þess að tjá sig og nýta þann orðaforða sem þau hafa tileinkað sér, en bæta jafnframt við sig nýjum orðum í samtali við önnur börn og kennara sem fylgist með, styður, spyr og leggur til þegar við á. Í leikskólum telst leikur til faglegs starfs sem er flókið og oft ekki sýnilegt fyrir þau sem ekki hafa þekkingu á þeirri hugmyndafræði sem leikskólastigið byggir á. Þar er áhuga barna fylgt eftir og þeim sköpuð tækifæri til að nýta reynslu sína til náms. Rannsóknir sýna að börn þurfi samfelldan tíma til leiks til að geta dýpkað þekkingu sína; þegar leikur er stöðugt rofinn vegna fyrir fram ákveðinna verkefna missir hann þá dýpt sem þarf svo hann geti verið öflug námsleið. Leikur á ekki að vera umbun eftir að öðrum verkefnum er lokið – hann á að vera meginstoð í starfi leikskóla. Í starfi okkar sem háskólakennarar heyrum við sífellt oftar frá nemendum okkar í leikskólakennarafræði að leikurinn fái minna rými í daglegu starfi. Þau lýsa leikskólastarfi þar sem börnin taka þátt í beinni kennslu. Sem dæmi um verkefni sem falla þar undir eru vinnublöð þar sem unnið er með ákveðna námsþætti, hringekja þar sem börnin færa sig á milli stöðva og vinna ákveðin verkefni, allt verkefni sem eru að mestu að fyrirmynd grunnskólans. Nemendur greina frá utanaðkomandi þrýstingi um að sýna fram á „raunverulegt nám“, sem lýsir sér í að börn sitji við borð, fái vinnublöð eða stafainnlögn. Leikskólinn þurfi viðurkenningu sem fyrsta skólastigið og hluti af því felist í að tala um nemendur frekar en börn, en samkvæmt hugmyndafræði leikskólans er litið á barnið í heild sinni en ekki einungis í hlutverki þess sem nemur og því talað um börn. Þessi umræða vekur hjá okkur spurningu um hvort leikskólinn þurfi stöðugt að máta sig við og líkja eftir starfsháttum grunnskólans til að öðlast þá viðurkenningu og virðingu sem hann á skilið. Í sumum leikskólum upplifir starfsfólk að það fái meiri viðurkenningu ef hægt er að sýna fram á mælanlegt og sýnilegt nám. Að auðveldara sé að útskýra og rökstyðja beina kennsluhætti fremur en hvað eða hvernig börn læra í leik. Þegar leikskólinn er metinn út frá viðmiðum grunnskólans verður hann alltaf í stöðu þess að „standast ekki prófið“ sem leiðir til þess að leikskólastarf fari að líkjast meira og meira starfi í grunnskólum. Rannsóknir hafa sýnt að bóknámsrek (sú tilhneiging að færa starfsaðferðir grunnskólans inn í leikskólann) hafi fyrir löngu hafið innreið sína í leikskóla landsins og svo virðist sem sú þróun haldi áfram. Nú, eins og svo oft áður, er hávær umræða um lestrarkunnáttu barna. Í slíkri umræðu er gjarnan litið til leikskólans og gert ákall um að byrja formlega kennslu fyrr. Afleiðingin er sú að bóknámsrek hefur færst niður í sífellt yngri aldurshópa og jafnvel til allra yngstu barna leikskóla sem sitja meðal annars undir stafainnlögn. Rannsóknir sýna að flest börn læra stafina og tæknina við að lesa, en sum þeirra hafa ekki nægan orðaforða og skilning til að ná merkingu þess sem þau lesa. Orðaforði ungra barna, málþroski og skilningur þróast fyrst og fremst í leik þeirra, samskiptum, frásögnum, skapandi starfi og samtali við önnur börn og fullorðna, ekki með vinnublöðum og stöðluðum verkefnum. Ef efla á læsi barna er lausnin ekki að hefja stafainnlögn og formlega lestrarkennslu í leikskóla. Hlutverk grunnskólakennara á yngsta stigi er að kenna þá tæknilegu færni sem nauðsynleg er til að börn læri að lesa. Það má heldur ekki gleyma því að læsi snýst ekki bara um tæknilega færni, heldur hæfileikann til að skilja og skapa merkingu. Málþroski er undirstaða læsis og hann eflist meðal annars í leik og samskiptum við aðra, börn og fullorðna. Spurningar sem við - sem komum að menntun ungra barna - þurfum að velta fyrir okkur í umræðu dagsins: Viljum við að leikskólinn tapi sérstöðu sinni, þar sem starfshættir taka mið af því að samskipti, leikur, forvitni og áhugi barna sé undirstaða náms? Viljum við að leikurinn víki fyrir stafainnlögn, sporaæfingum og formlegri verkefnavinnu eða viljum við að börn fái tækifæri til að efla sköpun, sjálfstæði, félagsfærni og öðlist þannig aukinn skilning og færni? Höfundar hafa áhyggjur af því að hugmyndafræði leikskólans sé hægt og hljóðlega að deyja út. Ef það raungerist verði leikskólastarf snauðara og börnin munu gjalda þess. Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent í leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Bryndís Gunnarsdóttir, aðjúnkt í leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar