Slysið stoppar ekki 41 árs Vonn sem keppir með slitið krossband Sindri Sverrisson skrifar 3. febrúar 2026 18:32 Lindsey Vonn er ein stærsta stjarna Vetrarólympíuleikanna í ár. Hún er staðráðin í að keppa á sunnudaginn. Getty/Carmen Mandato Bandaríska skíðadrottningin Lindsey Vonn er mjög vongóð um að geta keppt í bruni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn, þrátt fyrir að hafa slitið krossband í hné við fall í keppni á föstudaginn.
Krossbandsslit halda íþróttafólki vanalega frá keppni í 9-12 mánuði en hin 41 árs gamla Vonn ætlar sér samt sem áður að keppa á Vetrarólympíuleikunum sem væntanlega verða hennar síðustu leikar. Vonn hefur lagt á sig gríðarlega vinnu við að komast aftur í allra fremstu röð, eftir fimm ára hlé 2019-24 og hnjáskiptiaðgerð, og er efst í stigakeppninni í bruni á heimsbikarmótaröðinni í vetur. Þess vegna þótti hún einna líklegust til að landa gullverðlaunum í bruni á Ítalíu á sunnudaginn en það breyttist allt þegar hún meiddist á heimsbikarmóti í Sviss síðasta föstudag. Con el corazón en un puño 🙏Lindsey Vonn sufre una dura caída que interrumpe el descenso de Crans Montana, a una semana del comienzo de los Juegos Olímpicos pic.twitter.com/pvnx8gLOAQ— Eurosport.es (@Eurosport_ES) January 30, 2026 Hún var flutt með þyrlu á sjúkrahús eftir slysið og var ein þriggja sem féllu í brautinni, áður en keppnin var blásin af. Vonn segir að þrátt fyrir allt sé hnéð „stöðugt, sterkt og ekki bólgið“ og þess vegna sé hún viss um að geta keppt á Vetrarólympíuleikunum. Brunkeppnin er þar efst á lista hjá henni. „Á meðan enn er möguleiki þá reyni ég“ „Þetta er auðvitað ekki eitthvað sem ég vonaðist eftir. Ég hef lagt mjög mikið á mig til að komast á þessa leika á allt öðrum forsendum,“ sagði Vonn á blaðamannafundi í Cortina í dag. Hún kvaðst hafa skíðað í dag og að hnéð hefði þá haldið vel, án sársauka, en að hún myndi ekki vita stöðuna almennilega fyrr en í brunbrautinni. „Ég veit hverjar líkur mínar voru fyrir slysið og ég veit að líkurnar eru ekki þær sömu núna, en ég veit samt að möguleikarnir eru enn til staðar. Á meðan enn er möguleiki þá reyni ég,“ sagði Vonn meðvituð um efasemdir fólks um að hún gæti keppt með slitið krossband. „Þetta er ekki eitthvað sem ég þekki ekki. Ég hef gert þetta áður. Ég vildi óska að ég væri ekki í þessari stöðu en ég geri mitt besta. Ég ætla ekki að fara heim og sjá eftir því að hafa ekki reynt. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að standa þarna í rásmarkinu,“ sagði Vonn.
Skíðaíþróttir Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Bætti óvænt fjórtán ára gamalt met Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Söguleg endurkoma Knicks Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Sjá meira