Viðskipti erlent

Skemmtigarðastjóri Disney verður for­stjóri

Samúel Karl Ólason skrifar
James P. Gorman stjórnarformaður, Josh D’Amaro verðandi forstjóri, Dana Walden sem verður næstráðandi og Robert A. Iger fráfarandi forstjóri.
James P. Gorman stjórnarformaður, Josh D’Amaro verðandi forstjóri, Dana Walden sem verður næstráðandi og Robert A. Iger fráfarandi forstjóri. AP/Walt Disney

Stjórn stórfyrirtækisins Walt Disney hefur ráðið Josh D‘Amaro til að taka við sem forstjóri af Robert A. Iger. D‘Amaro, sem hefur á undanförnum árum stýrt skemmtigarða- og skemmtiferðaskipadeild fyrirtækisins, verður þar af leiðandi níundi forstjóri Disney en 102 ár eru liðin frá því það var stofnað.

D‘Amaro mun taka við starfinu á aðalfundi Disney í næsta mánuði, samkvæmt yfirlýsingu á vef félagsins.

Skemmtigarða- og skemmtiferðaskipadeild Disney hefur skilað miklum hagnaði á undanförnum árum en D‘Amaro eru sagður hafa borið sigur úr býtum gegn Dana Walden í baráttunni um forstjóratitilinn, samkvæmt frétt Wall Street Journal.

Walden hefur stýrt skemmtiefnisdeild Disney og þar með hefur hún meðal annars haldið utan um streymisveitur fyrirtækisins, kvikmyndaframleiðslu og fréttastöðvar. Hún fær stöðuhækkun og mun heyra bein undir D‘Amaro.

Í frétt WSJ segir að stjórn Disney hafi lagt mikið kapp á að keyra forstjóraskiptin í gegn eins vandræðalaust og mögulegt er. Árið 2020 tók Bob Chapek, þáverandi yfirmaður skemmtigarða Disney, við stöðunni af Bob Iger. Hann var þó rekinn tveimur árum síðar og Iger ráðinn aftur. Nú er hann að hætta aftur.

D‘Amaro stendur frammi fyrir því erfiða verkefni að auka vöxt hjá Disney en frá 2021 hefur virði hlutabréfa félagsins lækkað um nærri því helming en virðið hefur í raun staðið í stað undanfarin þrjú ár.

James Gorman, stjórnarformaður, segir í áðurnefndri yfirlýsingu að D‘Amaro búi yfir sterkri sýn varðandi framtíð Disney og hafi djúpan skilning á fyrirtækinu og þeim anda sem gert hefur Disney einstakt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×